
Auðæfi sjávar hafa frá upphafi skipt miklu máli fyrir landsmenn og oftar en ekki orðið til að varna því að þjóðin yrði hungurmorða. Það hefur því verið róið til fiskjar frá landnámi og fram á þennan dag, þótt með öðrum hætti sé nú. Um land allt er að finna ummerki þessarar sjósóknar. Naust, verbúðatóttir, lendingar, hjallar, fiskigarðar, fisksleggjur, vaðsteinar og fleira eru minnisvarðar um sjósókn og fiskverkun fyrri tíma. Fiskbyrgi, einnig nefnd herslubyrgi og skreiðarbyrgi, eru slíkir minnisvarðar.
Lesa áfram »