
Pyntingar eru í eðli sínu skipuleg aðferð til að brjóta niður einstaklinginn, jafnt á líkama og sál. Það er staðreynd að það eru yfirleitt ríki sem pynta þegna sína í þeim tilgangi sem ríkið skilgreinir sem forgangsatriði hverju sinni, svo sem þjóðaröryggi, yfirráð yfir ákveðnu landsvæði eða opin hugtök eins og „hagmunir heildarinnar.“ Þessi staðreynd er fullkomin andstaða þess sem í dag er skilgreint sem lýðræði og lagalegt frelsi, þ.e.a.s. áhersla á réttindi einstaklingsins gagnvart ríkinu. Þrátt fyrir aldarlanga baráttu sem snúist hefur um að ríkið kæmi fram við einstakling sem jafninga, er ríkið enn sá aðili sem einstaklingum stafar mest hætta af þegar kemur að mannréttindabrotum.
Lesa áfram »