
„Múrinn verður standandi eftir 50 og jafnvel 100 ár ef forsendur hans hverfa ekki“, sagði Eric Honecker aðalritari austurþýska kommúnistaflokksins i ræðu þann 19. januar 1989. Hann reyndist einkar ósannspár; tíu mánuðum síðar var múrinn fallinn og sameining Þýskalands stóð fyrir dyrum.
Tuttugu árum síðar ávarpaði Angela Merkel kanslari Þýskalands lýðinn fyrir framan Brandenborgarhliðið og brýndi fyrir þjóðinni að sameiningarferlinu sem hófst fyrir tuttugu árum væri ekki lokið. Það tekur sinn tíma fyrir þjóð að gera upp við áratuga aðskilnað í kjölfar heimsstyrjaldar. Í þessum hluta greinarinnar verða sagðar nokkrar sögur um sundrun og sameiningu borgarinnar, en í hinum sem birtist næsta þriðjudag verður fjallað um hátíðahöldin.
Lesa áfram »