
Fall múrsins náði strax augum heimsbyggðarinnar, enda um stórmerkilegan og jafnframt afar myndrænan atburð að ræða. Fréttamyndir af Berlínarbúum með hamar og meitil að kroppa niður múrinn eða vinum og ættingjum sem hlaupa hvort í annars faðm voru sýndar um alla heimsbyggðina. Berlínarbúar sjálfir voru líka vel með á nótunum um að hér væri um stórmerkilegan sögulegan atburð að ræða. Mánuðina eftir fallið mátti alls staðar sjá og heyra hamarshögg borgarbúa sem voru að hamast á múrnum. Ekki endilega til þess að rífa hann niður, það var um garð gengið, heldur til þess að komast yfir múrbrot til að eiga eða til að selja. Hin skammlífa borgarstjórn Austur-Berlínar eftir fallið, reyndi að vísu að slá eign sinni á múrinn, til að geta þjóðnýtt hagnaðinn af sölu hans til ferðamanna.
Lesa áfram »