
Störf sveitarstjórnarmanna eru oft í deiglunni. Þegar þeir hljóta kosningu finnst kjósendum þeir eiga heimtingu á því að sveitarstjórnarmenn ræki störf sín með ákveðnum hætti. Umfjöllun fjölmiðla snýr því oftast nær að pólitískri ábyrgð þeirra. Í umræðunni gleymist þó oft að sveitarstjórnarmenn bera líka ákveðnar lagalegar skyldur í störfum sínum. Þessar skyldur, ásamt réttindum sveitarstjórnarmanna, eru talin upp í sveitarstjórnarlögum. Skyldurnar eru þó ekki alltaf í fullu samræmi við þá pólitísku sýn sem er uppi hverju sinni, hvort sem er sýn kjósenda eða stjórnmálamannanna sjálfra.
Ein þessara skyldna er mætingarskylda sveitarstjórnarmanna. Inntak hennar er einfalt – sveitastjórnarmönum ber að sækja fundi sveitarstjórna nema lögmæt forföll hamli.
Lesa áfram »