Greinar frá mánuðinum December, 2009

fimmtudagur, 17. des 2009

Skítug jól

skitug jol

Það var aðfangadagur og ég og bróðir minn sátum á stofugólfinu heima og vorum í hláturskasti yfir vitleysunni í Jóga birni þegar við heyrðum skaðræðisöskur innan úr forstofunni. Við hlupum fram og sáum aftan á mömmu rífa alla skóna úr forstofuskápnum. Síðan snéri hún sér að okkur með hendurnar fullar af ryki. „Kallið þið þetta þrif?!!“ Við litum lúpuleg á hvort annað og hristum svo höfuðin í skömm. Við höfðum reynt að sleppa vel við þrifin. En Adam var ekki lengi í paradís því að mamma hafði yfirnáttúrulega hæfileika, hún heyrði allt sem gerðist í húsinu og vissi upp á hár hvort við höfðum klárað þrifin eða ekki.

Lesa áfram »

miðvikudagur, 16. des 2009

Ísland, Evrópa og íslamfælni

JalsaSalana 2009
JalsaSalana 2009

Múslimum hefur fjölgað í ríkjum Evrópusambandsins (ESB) hin síðustu ár, en nokkuð skortir á heimildir um fjölda þeirra. Þó má telja að árið 2005 hafi 13 eða jafnvel 15 milljónir múslima búið í aðildarlöndum ESB eða rúmlega 3% íbúa. Múslimar eru hlutfallslega fáir í Evrópu miðað við fjölda þeirra á heimsvísu, en álitið er að 1,57 af 6,8 milljörðum íbúa jarðar teljist múslimar. Lítið hefur farið fyrir faglegri rýni í aðstæður múslima á Vesturlöndum þó svo að fræðasamfélagið hafi tekið eitthvað við sér í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar á tvíburaturnana 11. september 2001. Á hinn bóginn hefur fælni í garð múslima verið nokkuð áberandi og jafnvel farið vaxandi. Þannig sýnir viðhorfsrannsókn sem IMG Gallup vann fyrir Rauða Kross Íslands árið 2005 að tæpur fjórðungur Íslendinga er ósáttur við að hafa múslima sem nágranna. Markmið þessarar greinar er að veita smá innsýn í umfjöllun fræðimanna um íslamfælni.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 3. des 2009

A Serious Man

Serious man

Þegar bræðurnir Joel og Ethan Coen taka sig til og gera mynd, þá er það alltaf tilhlökkunarefni fyrir flesta kvikmyndaunnendur. Ástæðurnar eru frekar einfaldar: þeir hafa góðan stíl, þeir taka aldrei á hlutum á hefðbundinn hátt og útkoman er alltaf áhugaverð. Þessar ástæður eiga vel við nýjustu afurð þeirra, A Serious Man sem sýnd er í Háskólabíói þessa daganna. Myndin hefst í miðjum snjóstormi einhvers staðar í Austur-Evrópu fyrr á öldum. Hjón nokkur fá rabbína í heimsókn og deila í kjölfarið um það hvort hann sé draugur eða ekki. Víkur sögunni eftir þennan formála til hefðbundins úthverfis í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna árið 1967 þar sem söguhetja myndarinnar, eðlisfræðiprófessorinn Larry Gopnik er kynntur til sögunnar ásamt fjölskyldu sinni af gyðingaættum. Sonurinn er að fara að fermast og á í vandræðum í gyðingaskólanum. Dóttirinn stelur úr veski föður síns svo hún geti safnað sér fé fyrir nefaðgerð. Sérstakur bróðir Gopniks býr inni á honum. Til að bæta gráu ofan á svart vill eiginkonan skilnað til að geta tekið saman við sameiginlegan kunningja þeirra.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 1. des 2009

Óhefðbundnar lækningar: Kukl eða vanmetið lækningakerfi?

Budda lækninga

Gömul og gróin húsráð, grasalækningar og smyrsl eru flestum kunn. Margir nota þau meðvitað til að bæta heilsu sína, aðrir ómeðvitað í formi ráða frá ættingum. Nú til dags er hægt að leita til fjölda meðferðaraðila og ráðgjafa sem gefa ráð sem flokkast undir óhefðbundnar lækningar. Frá miðri 19. öld hefur vísindahyggja verið við lýði í vestrænum samfélögum og kemur það fram í áherslum vestrænnar læknisfræði á gagnsemi inngripa og tækni. Henni samkvæmt hefur verið litið á líkama og huga sem tvö aðskilin fyrirbæri sem hafi engin samverkandi áhrif í læknismeðferðum. Þó virðist það vera um það bil að breytast

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN