
Þegar bræðurnir Joel og Ethan Coen taka sig til og gera mynd, þá er það alltaf tilhlökkunarefni fyrir flesta kvikmyndaunnendur. Ástæðurnar eru frekar einfaldar: þeir hafa góðan stíl, þeir taka aldrei á hlutum á hefðbundinn hátt og útkoman er alltaf áhugaverð. Þessar ástæður eiga vel við nýjustu afurð þeirra, A Serious Man sem sýnd er í Háskólabíói þessa daganna. Myndin hefst í miðjum snjóstormi einhvers staðar í Austur-Evrópu fyrr á öldum. Hjón nokkur fá rabbína í heimsókn og deila í kjölfarið um það hvort hann sé draugur eða ekki. Víkur sögunni eftir þennan formála til hefðbundins úthverfis í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna árið 1967 þar sem söguhetja myndarinnar, eðlisfræðiprófessorinn Larry Gopnik er kynntur til sögunnar ásamt fjölskyldu sinni af gyðingaættum. Sonurinn er að fara að fermast og á í vandræðum í gyðingaskólanum. Dóttirinn stelur úr veski föður síns svo hún geti safnað sér fé fyrir nefaðgerð. Sérstakur bróðir Gopniks býr inni á honum. Til að bæta gráu ofan á svart vill eiginkonan skilnað til að geta tekið saman við sameiginlegan kunningja þeirra.
Lesa áfram »