Húsnæðismál hafa lengi verið Félagi múslíma á Íslandi hugleikin. Það má m.a. sjá í viðtali frá árinu 1997 þar sem formaðurinn lýsir byggingu mosku sem æðsta markmiði þess. Í skýrslu ársins 2003 segir að félagið hafi ráðið bót á langvinnu húsnæðishraki og keypt húsnæði undir starfsemina í Ármúla 38 árið 2001. Jafnframt segir að kaupin hafi stórbætt aðstöðuna gert fastar föstudagsbænir að veruleika. Félagið sótti fyrst um lóð undir mosku árið 2000 og hefur sú umsókn verið að velkjast í borgarkerfinu æ síðan. Í janúar 2006 jókst mönnum bjartsýni þegar skipulagsráð lagði fram tillögur um mögulegt staðarval fyrir mosku félagsins, kirkju rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og hof Ásatrúarfélagsins. Tillagan gerði ráð fyrir 4 - 5.000 m2 lóð við Stekkjarbakka í Elliðaárdal.
Lesa áfram »Hvort neikvæð afstaða fyrr á öldum móti enn í dag viðhorf Íslendinga til múslíma skal ósagt látið. Eflaust á það við í einhverjum tilfellum, en þó er líklegra að önnur atriði ráði mótun viðhorfanna hjá þorra almennings. Múslímar og íslam birtast nefnilega ekki lengur eingöngu í ævintýralegum frásögnum af undarlega siðuðu fólki undir eyðimerkursól. Nútímasögurnar eru í auknu mæli í formi frétta. Innlendra sem erlendra. Þótt stundum megi deila um sannleiksgildið er framboð upplýsinganna klárlega meira en áður og því úr meiru að moða. Hér skipta aðrir þættir líka máli. Atriði eins og sjálf tilvera múslíma á Íslandi, fjöldi, fjölgun þeirra og samskipti við aðra samfélagshópa.
Lesa áfram »
Þessa umfjöllun er best að byrja með því að segja það hreint út: ég er hlutdrægur þegar kemur að Maybe I Should Have, þekki fólkið sem stendur að henni og aðstoðaði örlítið við gerð hennar.
En líkt og flestir Íslendingar, þá er líka alls ekki hægt að vera annað en hlutdrægur þegar kemur að umfjöllunarefni myndarinnar: Hrunið og leit að svörum. Og í myndinni er áhorfendum gert það ljóst að henni er ekki ætlað að dulbúast sem heimildarmynd, heldur að vera samfélagsrýni þeirra sem að henni standa.
Lesa áfram »
Að kasta eins og stelpa er vel þekkt í daglegri orðræðu og þýðir að kasta illa, stutt eða laust. Stelpuköst eru undantekningalítið gripin samstundis af andstæðingnum eða varin fyrirhafnarlítið af markmanni sé þeim beint að marki. Að bendla slæma framistöðu í íþróttum við konur er vel þekkt minni úr dægurkúltúrnum. Hver hefur ekki séð bíómyndir þar sem þjálfarinn hellir sér yfir strákana í leikhléi og spyr þá hvort þeir ætli að leika eins alvöru íþróttamenn eða kjéllingar, nú eða heyrt svipaðar ræður frá leikfimikennara í grunskóla? Í þessu greinarkorni verða stelpuköstin skoðuð út frá kenningum femínískra fræðimanna um íþróttir og líkama kvenna.
Lesa áfram »
Ólympíuleikarnir og þær hugsjónir sem þeir standa fyrir eru vel þekkt. Í næsta mánuði hefjast vetrarólympíuleikarnir í Vancouver og verða grunngildi Ólympíuhreyfingarinnar höfð að leiðarljósi þar sem áður: samheldni, mannvirðing, friður, skilningur og umburðarlyndi. Sumum þykja þessi góðu gildi þó fara fyrir lítið og gagnrýna hvernig staðið er að skipulagi og framkvæmd leikanna. Hér verður litið á hvernig ólympíuhugsjónunum er viðhaldið og miðlað innan hreyfingarinnar og hvaða tækifæri og takmarkanir eru fyrir hendi á dreifingu ólympíuandans til almennings.
Lesa áfram »Ritstjórn Hugsandi býður lesendur velkomna aftur eftir pásu yfir hátíðarnar. Nú taka við reglulegar birtingar, á þriðjudögum og fimmtudögum. Þess á milli er tilvalið að kíkja á ritsafn Hugsandi.
