Greinar frá deginum 26th January, 2010

þriðjudagur, 26. jan 2010

Íslam á Íslandi: Múslímar á Íslandi og viðhorf í þeirra garð

Allah

Hvort neikvæð afstaða fyrr á öldum móti enn í dag viðhorf Íslendinga til múslíma skal ósagt látið. Eflaust á það við í einhverjum tilfellum, en þó er líklegra að önnur atriði ráði mótun viðhorfanna hjá þorra almennings. Múslímar og íslam birtast nefnilega ekki lengur eingöngu í ævintýralegum frásögnum af undarlega siðuðu fólki undir eyðimerkursól. Nútímasögurnar eru í auknu mæli í formi frétta. Innlendra sem erlendra. Þótt stundum megi deila um sannleiksgildið er framboð upplýsinganna klárlega meira en áður og því úr meiru að moða. Hér skipta aðrir þættir líka máli. Atriði eins og sjálf tilvera múslíma á Íslandi, fjöldi, fjölgun þeirra og samskipti við aðra samfélagshópa.

Lesa áfram »

ISSN