Húsnæðismál hafa lengi verið Félagi múslíma á Íslandi hugleikin. Það má m.a. sjá í viðtali frá árinu 1997 þar sem formaðurinn lýsir byggingu mosku sem æðsta markmiði þess. Í skýrslu ársins 2003 segir að félagið hafi ráðið bót á langvinnu húsnæðishraki og keypt húsnæði undir starfsemina í Ármúla 38 árið 2001. Jafnframt segir að kaupin hafi stórbætt aðstöðuna gert fastar föstudagsbænir að veruleika. Félagið sótti fyrst um lóð undir mosku árið 2000 og hefur sú umsókn verið að velkjast í borgarkerfinu æ síðan. Í janúar 2006 jókst mönnum bjartsýni þegar skipulagsráð lagði fram tillögur um mögulegt staðarval fyrir mosku félagsins, kirkju rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og hof Ásatrúarfélagsins. Tillagan gerði ráð fyrir 4 - 5.000 m2 lóð við Stekkjarbakka í Elliðaárdal.
Lesa áfram »