Greinar frá mánuðinum February, 2010

föstudagur, 26. feb 2010

Orðræðan um landflótta íslenskra ungmenna

Flóttamenn small

Undanfarið hefur mikið verið rætt um landflótta Íslendinga. Umræðan er sögð mikilvæg og því hafa margir stjórnmálamenn gert hana að sínu hjartans máli. Ef fylgst er með framvindu hennar á Alþingi má sjá að mörg stór orð hafa fallið, bæði hvað varðar þetta ógnvænlega fyrirbæri sjálft, en aðallega varðandi hvað er og hvað er ekki verið að gera til þess að fyrirbyggja verulega fólksfækkun. Ég ætla mér í þessari grein í fyrsta lagi að athuga örstutt þann orðaforða sem notaður er í þessari umræðu, hversu vel hann á heima þar og hvaða tilgangi hann þjónar. Er eitthvað samræmi milli tungumáls og veruleika sem réttlætir þau orð sem eru valin eða eru þau einungis ráðin sem málaliðar til að mjaka umræðunni í ákveðna átt? Í öðru lagi langar mig að athuga hvort þessi tiltekna umræða komi heim og saman við staðreyndir, út frá persónulegum sjónarhóli mín sjálfs.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 23. feb 2010

Frá lögbanni til þjóðhátíðar: Nokkur persónuleg orð um stöðu hinsegin málefna í Litháen, Þýskalandi og á Íslandi

kissing agains homophobia

Síðasta sumar var samþykkt löggjöf í Litháen sem tekur gildi 1. mars 2010 og kallast „Law on the Protection of Minors against the Detrimental Effect of Public Information“, sem gæti útlagst sem „Lög um verndun ólögráða einstaklinga fyrir skaðlegum áhrifum opinberra upplýsinga“. Þetta eru sem sagt barnaverndarlög. Það hljómar vel og skynsamlega, ef ekki væri fyrir þá staðreynd að þessi lög banna allar opinberar upplýsingar um samkynhneigð á þeim forsendum að vernda skuli kjarnafjölskylduna. Frá og með 1. mars nk. verður sem sagt bannað að fjalla um eða sýna samkynhneigð á nokkurn hátt á almannafæri í Litháen.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 18. feb 2010

“Mamma er meira svona í einfalda lífinu, þú veist”

Andrea jafrétti

Mikið hefur verið rætt og ritað á liðnum misserum um hlut kvenna í hinu opinbera lífi á Íslandi. Það er staðreynd að þrátt fyrir að hlutur kvenna á vinnumarkaði og í stjórnmálum hafi aukist jafnt og þétt á undanförnum árum þá er sú þróun frekar hægfara. Launamunur kynjanna virðist allt að því vera óbrúanlegur og lóðrétt verkaskipting vinnumarkaðar, þar sem karlar eru að jafnaði í hærri stöðum en konur, er eitt af megineinkennum íslensks vinnumarkaðar.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 16. feb 2010

Frá rauða til dauða - Járnvinnslurannsóknir í íslenskri fornleifafræði

blástursjárn

Járn er nytsamastur allra málma. Hvert sem litið er í samfélagi nútímans má sjá notagildi þess. Járn er að finna í burðarásum bygginga, flutningsleiðum ferksvatns og í hnífapörunum á borðinu. Nánast í hverjum krók og kima. Járnið er þó ekki aðeins mikilvægt í samfélagi nútímans heldur var það einnig mikilvægt í fortíðinni, hugsanlega enn mikilvægara en það er í dag. Segja má að íslenskt samfélag fyrir iðnbyltingu hafi grundvallast á járni. Hér verður fjallað á gagnrýninn um íslenskar rannsóknir á járnvinnslu og þær áherslur sem þær hafa einkennst af, um leið og varpað ferður fram hugleiðingum um hvernig líta megi viðfangsefnið öðrum augum.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 9. feb 2010

Stelpur í uppistandi - Um konur og húmor á almannafæri

microphone-with-stand-thumb-250x250-1233

Nú mætti velta fyrir sér hvort að mýtan um húmor sem einkavígi karla sé raunverulega með lífsmarki í samfélaginu eða hvort að allir viti að slíkar feðraveldiskreddur séu aðeins deyjandi myglublettur í þeim fúla forapytti sem bloggheimar geta stundum verið. Það sem er óumdeilanlegt er þó að konur eru ótrúlega sjaldséðar á uppistandssviðinu, hverjar svo sem ástæðurnar kunna að vera fyrir því. Það var einmitt undrun á þessu stelpuleysi í uppistandi sem að fékk vinkonu mína, Þórdísi Nadiu Semichat, til þess að stofna facebook-hóp í vor, þar sem hún auglýsti eftir stelpum sem hefðu áhuga á að vera með uppistand. Fjölmargar stelpur lýstu yfir áhuga og nú, nokkrum mánuðum síðar eru komnar fram ellefu stelpur sem nýlega héldu tvö uppistandskvöld þar sem þær troðfylltu Næsta bar og allt ætlaði um koll að keyra.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 4. feb 2010

Hvað er þetta?

BrianJungen_Prototype
Prototype (Brian Jungen)

Eruði búin að finna eitthvað?“ er spurningin sem glymur í eyrum allra fornleifafræðinga á tímabilinu júní-ágúst ár hvert og jafn erfitt er að svara henni í hvert sinn. Kannski er það vegna þess að það er erfitt – og einkennilegt – að vera sífellt að svara sömu spurningunni, en líka vegna þess að oftast nær finnst manni svarið liggja í augum uppi; „Hvað heldurðu maður! Auðvitað erum við búin að finna eitthvað!“ Það flóknasta við spurninguna er þó líklega það að þetta „eitthvað“ sem spurt er um er auðvitað ekki bara eitthvað heldur verður það að vera eitthvað – til þess að það þýði eitthvað! Og þar á hnífurinn til að standa í kúnni.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 2. feb 2010

Brosað í gegnum tárin - Ungfrú Grapevine 2009

245e5b5eccd22814

Kvenmannsleysi virðist ætla að hrjá fjölmiðla landsins sem aldrei fyrr árið 2010. Grunsamlega mörgum fréttakonum er sagt upp hjá RÚV og reynsluboltinn Elín Hirst fær að fjúka á meðan karlkyns hliðstæður virðast eiga auðveldara með að halda vinnunni. Karlar eru ríkjandi á miðlum eins og Kistunni og Pressunni ásamt því sem Sverrir Stormsker fær reglulega að ausa kvenhatri yfir lesendur Moggans. Það kom því væntanlega engum á óvart að þegar Grapevine gerði árið 2009 upp í sérblaði í janúar 2010 að karlar yrðu í meirihluta þeirra álitsgjafa sem leitað var til. Það hefðu þó væntanlega færri tekið eftir kynjaskekkjunni hefðu aðstandendur blaðsins algerlega sleppt því að spyrja konur í stað krýna Írisi Erlingsdóttur „Ungfrú Grapevine 2010“, eina kvenkyns álitsgjafa blaðsins.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN