Undanfarið hefur mikið verið rætt um landflótta Íslendinga. Umræðan er sögð mikilvæg og því hafa margir stjórnmálamenn gert hana að sínu hjartans máli. Ef fylgst er með framvindu hennar á Alþingi má sjá að mörg stór orð hafa fallið, bæði hvað varðar þetta ógnvænlega fyrirbæri sjálft, en aðallega varðandi hvað er og hvað er ekki verið að gera til þess að fyrirbyggja verulega fólksfækkun. Ég ætla mér í þessari grein í fyrsta lagi að athuga örstutt þann orðaforða sem notaður er í þessari umræðu, hversu vel hann á heima þar og hvaða tilgangi hann þjónar. Er eitthvað samræmi milli tungumáls og veruleika sem réttlætir þau orð sem eru valin eða eru þau einungis ráðin sem málaliðar til að mjaka umræðunni í ákveðna átt? Í öðru lagi langar mig að athuga hvort þessi tiltekna umræða komi heim og saman við staðreyndir, út frá persónulegum sjónarhóli mín sjálfs.
Lesa áfram »