Lengi vel hef ég haft það á tilfinningunni að íslensk stjórnvöld hafi ekki minnstu hugmynd um hve verðmætt hugvit er. Áherslan virðist oftar en ekki lögð á fiskiðnað og ál. En hvert skyldi kílóverðið vera á hugviti samanborið við t.d. fisk eða ál?
Tekið skal fram að þetta eru einungis vangaveltur og lítt vísindaleg athugun, en hugsanlega getur þessi spurning vakið einhvern til umhugsunar og þess vegna finnst mér einhver þurfa að spyrja hennar.