Greinar frá deginum 6th April, 2010

þriðjudagur, 6. apr 2010

Er vondi karlinn kona? Hugleiðing um hlutverk konunnar í flökkusögum í samtímanum

Við höfum sagt hvert öðru flökkusagnir frá örófi alda og ferðast þær manna á milli eins og nafnið gefur til kynna. Segja mætti að flökkusagnir séu nokkurs konar spegilmynd samfélagsins, en sagnirnar hafa þó breyst töluvert í gegnum tíðina. Þjóðfræðingurinn Timothy R. Tangherlini hefur borið saman sagnir úr eldri sagnahefð við flökkusagnir í samtímanum. Hann heldur því fram að hugmyndin um „hina“ hafi flust frá gjörðum hinna yfirnáttúrulegu til gjörða mannfólksins sjálfs. „Hinir“ eru ekki lengur yfirnáttúrulegar verur heldur áþreifanlegar manneskjur. Í eldri sagnahefðinni voru „hinir“ sem dæmi; álfar, tröll, nornir og draugar en í dag eru þeir innflytjendur, geðsjúklingar, flóttamenn og alkar, eða allir þeir sem tilheyra svæðinu utan okkar svæðis. Sagnirnar fjalla því um „hina“ og eru það ávallt „hinir“ sem brjóta normin. Því er það merkilegt þegar skoðaðar eru flökkusagnir um „misheppnaða“ kynlífsreynslu fólks að það hallar yfirleitt á konuna í þeim sögnum, sem dæmi er eftirfarandi sögn um kinky ástarleik hjóna:

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN