Greinar frá deginum 21st April, 2010

miðvikudagur, 21. apr 2010

Íslam á Íslandi: Reynsla nágranna

Talið er að um 15 milljónir af rúmum milljarði múslíma heimsins búi í löndum V-Evrópu, þar af um 1 milljón á Ítalíu, ein og hálf í Bretlandi og 3,2 milljónir í Þýskalandi. Frakkar bera höfuð og herðar yfir önnur ríki, en þar búa heilar 5,5 milljónir múslíma. Búseta múslíma í Evrópu er hluti af þeirri breyttu heimsmynd sem þróast hefur á síðustu 30-40 árum. En þótt myndin sé iðulega sú sama, þ.e. aukið hlutfall múslímskra íbúa landanna, hafa yfirvöld kosið að nálgast þá með gjörólíkum hætti. Þannig er t.d. grundvallarmunur á nálgunum Frakka og Breta að viðfangsefninu. Á meðan Frakkar halda fast í það grundvallaratriði í stjórnskipan sinni að trúmál séu einkamál hafa Bretar verið óhræddari við að blanda saman stjórnmálum og trúmálum. Þetta lýsir sér t.d. í því að á meðan Frakkar velja að banna slæðuburð kvenna í skólum landsins ráða Bretar múslímska ráðgjafa í fangelsi landsins sem hafa m.a. það hlutverk að vera múslímskum föngum innan handar og túlka fyrir þá sharia-lög. Þetta er mikilvægt atriði þar sem rannsóknir hafa sýnt að nálgun ríkisins að múslímskum minnihlutahópum hafi afgerandi áhrif á stofnanavæðingu íslams innan ríkisins og þ.a.l. mikil áhrif á það hvernig trúarbrögðin og hið múslímska samfélag þróast í viðkomandi landi.1 En hvernig hefur þróunin verið undanfarið?

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN