Greinar frá deginum 4th May, 2010

þriðjudagur, 4. maí 2010

Heiladauði og líffæragjafir

heili

Líffæragjafir, tæknivæðing dauða, ákvörðun um heiladauða og hvenær einhver sé hæfur líffæragjafi er viðfangsefni Margaret Lock í greininni On dying twice: culture, technology and the determination of death. Hún rannsakaði viðhorf til líffæragjafa hjá heilbrigðisstarfsfólki í Japan og Bandaríkjunum og hvers vegna ráðandi viðhorf í þeim löndum eru jafn ólík og raun ber vitni. Í Japan ríkir mikil tregða til að samþykkja líffæragjafir, sérstaklega í tilfelli heiladauðra, og sætir skilgreiningin á heiladauða mikilli gagnrýni þar í landi. Í Bandaríkjunum er aftur á móti lögð áhersla á líffæragjöf sem hetjudáð, hún gerð að venju og lofuð.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN