Greinar frá deginum 11th May, 2010

þriðjudagur, 11. maí 2010

Tilbeiðsla á Hinu Ófullkomna. Um þýðingu úr Bókinni um te eftir Kakuzō Okakura.

Okakura_Tenshin

"Teið er ekki eins og vínið, sem ýtir undir hroka, það er ekki eins og kaffið, sem gerir okkur sjálfhverf, né heldur er það eins og kakóið, sem breytir okkur í hjákátleg meinleysisgrey."

Bókin um te er óvenjulegt og skemmtilegt rit. Með umfjöllun sinni um þær japönsku listgreinar sem koma saman í tesiðaathöfninni og heimspekina sem liggur henni að baki gerir Okakura grein fyrir siðfræði og fagurfræði Japana í heild. Okakura er snjall penni, óspar á gífuryrði og litríkt myndmál en einnig beittur í hugsun og hvass í gagnrýni sinni á nútímasamfélagið. Því hefur Bókin um te margt til að bera og höfðar hún ekki aðeins til áhugamanna um te-siðinn, heldur til allra þeirra sem láta sig austræna menningu og heimspeki einhverju varða.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN