Það virtist líka fara framhjá flestum að níumenningarnir væru ekki aðeins ákærðir fyrir húsbrot eða líkamsmeiðingar á tilteknum einstaklingum líkt og venjan er þegar fólki lendir saman. Þeir eru einnig ákærðir fyrir „að ráðast á Alþingi“ samkvæmt 100. grein almennra hegningarlaga. Aðeins einu sinni hefur verið sakfellt samkvæmt þessu ákvæði, vegna átakanna sem áttu sér stað á Austurvelli í aðdragandanum að inngöngu Íslands í NATO árið 1949.
En hvað þýðir „að ráðast á Alþingi“? Er ég að ráðast á Alþingi ef ég ræðst inn í þingsalinn? Ef ég ætla að nýta mér rétt minn til að fylgjast með opnu þinghaldi? Fáir treysta sér til að svara því enda „árás á Alþingi“ æði óljóst hugtak og litlar útskýringar að finna í lögunum sjálfum aðrar en að Alþingi eða sjálfræði þess skal hætta búin. Lögspekingar hafa þó getið sér til um að ákvæðið skírskoti til valdaráns, ekki tilraunar til að komast upp á áhorfendapalla Alþingis.
Lesa áfram »