Greinar frá deginum 25th May, 2010

þriðjudagur, 25. maí 2010

Kukl og kaffi – um bollaspádóma

Spádómar hafa löngum vakið athygli fólks og alveg frá upphafi hafa menn reynt að komast að því hvað gerist í framtíðinni. Grundvöllurinn að spádómum er forlagatrúin sem er sammannleg hugmynd um að framtíðin sé fyrirfram ákveðin af einhverju æðra valdi og að henni verði ekki breytt með mannlegu valdi. Þó sé hægt að sjá fyrir um framtíðina með ýmsum aðferðum og með því sé hugsanlega hægt að gera ráðstafanir eða undirbúa sig á einhvern hátt undir hið óumflýjanlega. Í forlagatrúarhugmyndinni birtast tveir heimar, okkar heimur þar sem allt er í föstum skorðum og þar sem við þekkjum aðstæður og svo hinn heimurinn (e. the otherworld) sem við þekkjum ekki og þurfum því að umgangast með varúð. Þarna birtist ákveðin tvíhyggja, tveir andstæðir pólar en sú hugmynd finnst mjög víða, sérstaklega í trúmálum og ýmsir fræðimenn hafa rannsakað, til dæmis Claude Lévi-Strauss í The Raw and the Cooked 1 og Mircea Eliade í The Sacred and the Profane.2 Það sem er hinsvegar ekki síður áhugavert eru landamærin á milli heimanna, jaðarinn þar sem allt getur gerst og þar sem hægt er að staðsetja spádómana.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN