Greinar frá deginum 27th May, 2010

fimmtudagur, 27. maí 2010

Skarð í bolla og vör-Meðgönguhjátrú í þjóðháttasafni

„Vanfær kona mátti ekki […] borða gómfyllu úr sviðahaus, varð þá barnið holgóma.“ (ÞÞ 721 kk f.1918 Hraun). Það er margt sem við leggjum á okkur til að koma börnunum okkar klakklaust og fullkomnum í heiminn. Meðgangan er tími óvissu og nokkurs stjórnleysis af hálfu þeirra sem standa utan legsins, móðirin sjálf sem og aðrir geta lítið gert til að hafa áhrif á meðgönguna og barnið sem er á leiðinni. Það er þó ekki þar með sagt að við reynum ekki að hafa áhrif. Mannfólkið er mjög upptekið af því að hafa stjórn á heiminum og geta óvissutímabil eins og meðganga tekið mjög á taugar hinna verðandi foreldra. Þegar við stöndum frammi fyrir slíku millibilstímabili sækjum við oft og iðulega í hjátrú eða þjóðtrú og óhefðbundnar leiðir í tilraun til að hafa einhverja stjórn á aðstæðum. Í dag sækjum við í tækni og vísindi, til viðbótar við þjóðtrúna, í tilraun til að tryggja barninu og meðgöngunni gott brautargengi.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN