Greinar frá mánuðinum June, 2010

þriðjudagur, 29. jún 2010

GET A LIFE! - tilraun til að afbyggja sívaxandi neyslusamfélag

2

Við í Kviss búmm bang leitumst við að opna fyrir hina ýmsu möguleika sem leikverk hefur upp á að bjóða. Vinnuaðferðir okkar eru að búa til heima þar sem fólk kemur og tekur þátt, til lengri tíma, í sviðsettum aðstæðum sem teygja sig inn í þeirra eigin líf og hversdagsleika þess. Okkur langaði til að halda áfram að vinna verk sem vara lengi og búa til verk með skyndilausnir samtímans að útgangspunkti. Úr varð GET A LIFE! 6 vikna átaksnámskeið þar sem 35 skráðir þátttakendur mættu vikulega, í 6 skipti alls, 2 klst í senn, í fyrirlestrarsal í miðbæ Reykjavíkur. Í kynningu verksins var fólki lofað „hinni fullkomnu endurnýjun á lífi sínu.“

Lesa áfram »

föstudagur, 25. jún 2010

Kynlíf aldraðra, II. hluti.

I'm the oldest gay in the village

Kynlíf er ekki einungis hluti af mannréttindum aldraða heldur einnig mikilvægt vegna þeirra nándar sem það gefur. Í fyrri hluta þessarar greinar var fjallað um kynlíf aldraðra, hvernig þær líkamlegu breytingar sem verða við öldrun hafa áhrif á kynlífið og viðhorf almennings til þessara þátta mannlífsins. Í þessum síðari hluta verður haldið áfram þar sem frá var horfið og m.a. fjallað um kynlíf aldraðra á stofnunum og viðhorf almennings og heilbrigðisstarfsmanna á því. Einnig verður fjallað um samkynhneigða aldraða, en aldrað samkynhneigt fólk er líklega sá hópur sem oftast gleymist og jafnvel ekki gert ráð fyrir því að þessi hópur sé til.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 22. jún 2010

Kynlíf aldraðra, I. hluti.

Kynlíf aldraðra

Kynlíf á efri árum hefur löngum þótt stirt umræðuefni í samfélaginu og af mörgum talið fátíður viðburður hjá ellihrumu fólki. Raunveruleikinn er annar þar sem kynlíf er hluti af eðlilegum athöfnum og löngunum fólks, óháð aldri. Ýmsir þættir kunna þó að hafa áhrif á tíðni og getu aldraðra til að stunda kynlíf. Lítil sem engin umræða á sér stað um þessi málefni og því á fólk erfitt með að mynda sér skoðanir sem eru lausar við fordóma. Í þessari fyrri grein af tveimur um kynlíf aldraðra verður fjallað almennt um kynlíf aldraðra, hvernig líkamlegar breytingar hafa áhrif á kynlíf eldri einstaklinga og viðhorf almennings til þessara þátta mannlífsins.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 15. jún 2010

Átakavíddir menningarbundins ofbeldis

Menningarbundið ofbeldi

Þrátt fyrir að hugtök eins og ,þjóðarmorð’ og ,menningarbundið ofbeldi’ séu fremur nýtilkomin, þá á merkingin sem í þeim felst langa sögu. Menningarbundin átök og ofbeldi, líkamlegt og andlegt, hafa tíðkast frá örófi alda og trúarleg átök, eins og krossferðirnar og spænski rannsóknarrétturinn, hafa verið stór þáttur af mótun mannkynssögunnar. Ofsóknir gegn gyðingum er eitt þekkt dæmi af menningarbundnu ofbeldi og er einskonar gegnumgangandi stef í sögu mannkyns. Gyðingum hefur gegnum tíðina verið eignaður heiðurinn af fjölbreyttri flóru ömurlegheita, allt frá efnahagskreppu Bandaríkjamanna snemma á 20. öldinni til Svarta dauða á 14. öld. Hvort sem þessar litríku ásakanir eru sprottnar af trúarlegum ástæðum eða jafnvel pólitískum eða samfélagslegum, flokkast ofsóknir sem þessar undir menningarlegt ofbeldi. Enn í samtímanum eru menningarbundin átök sýnileg. Félagsfræðingurinn Leo Kuper vill í raun meina, að í gjörðum kristinna í bæði krossferðunum, rannsóknarréttinum og trúarbragðastríðunum séu að finna sömu undirstöðuatriði og í ofsóknum nasista gegn gyðingum nú á síðustu öld.
Þó er ekki alltaf auðvelt að greina menningarbundin átök, ekki síður þar sem átök hafa fleiri víddir heldur en við sjáum á blóðugum vígvöllum sögubókanna.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 3. jún 2010

Sumartími á Hugsandi

Með hækkandi sól og björtum nóttum hefst sumartími á Hugsandi. Það hefur í för með sér að aðeins er ein birting í viku í stað tveggja. Hugsandi þakkar lesendum sínum fyrir samfylgdina í gegnum drungann í vetur og vonar að þeir njóti sumarsins, blíðu og breytilegrar áttar - og allra þeirra dásemda sem Ísland býður. Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN