Við í Kviss búmm bang leitumst við að opna fyrir hina ýmsu möguleika sem leikverk hefur upp á að bjóða. Vinnuaðferðir okkar eru að búa til heima þar sem fólk kemur og tekur þátt, til lengri tíma, í sviðsettum aðstæðum sem teygja sig inn í þeirra eigin líf og hversdagsleika þess. Okkur langaði til að halda áfram að vinna verk sem vara lengi og búa til verk með skyndilausnir samtímans að útgangspunkti. Úr varð GET A LIFE! 6 vikna átaksnámskeið þar sem 35 skráðir þátttakendur mættu vikulega, í 6 skipti alls, 2 klst í senn, í fyrirlestrarsal í miðbæ Reykjavíkur. Í kynningu verksins var fólki lofað „hinni fullkomnu endurnýjun á lífi sínu.“
Lesa áfram »