Áhrifamáttur atburða felst ekki endilega í þeim sjálfum heldur þeim umræðum sem skapast um þá. Franska stéttarþingið 1789 varð áhrifamikið sökum þess sem gerðist í kringum það, ekki síður en sökum þess sem gerðist á sjálfu þinginu. Undanfarin misseri hefur nokkuð verið ritað og rætt um hvort og þá hvernig og hvers vegna eigi að breyta Stjórnarskrá lýðveldisins og má ætla að ekki dragi úr þeirri umræðu í tengslum við væntanlegan þjóðfund og stjórnlagaþing. Umræða um stjórnskipan og mannréttindi er ekki síður mikilvæg heldur en niðurstaðan sem komist verður að um hvernig þessum málum skuli háttað. Sagnfræðingafélag Íslands leggur um þessar mundir sín lóð á þessar umræðuskálar með hádegisfundaröðinni Hvað eru lög?
Lesa áfram »Þorrablótin og þorramaturinn er eitthvað sem enginn Íslendingur dregur í efa að sé íslenskur menningararfur. Þorramatnum fylgir síðan oftar en ekki íslenska brennivínið. Mætti þá segja að íslenska brennivínið sé jafn viðurkenndur menningararfur eins og til dæmis handritin okkar? Ólíklegt er að UNESCO myndi taka brennivínsflöskuna inn á sinn lista án athugasemda. En þrátt fyrir það þá hefur íslenska brennivínið sinn stað í hjörtum landsmanna.
Lesa áfram »Hvað myndir þú gera ef þú fengir að stjórna heiminum part úr degi? Útrýma kjarnavopnum? Sjúkdómum? Hungri og fátækt? Grípa til aðgerða gegn loftslagsbreytingum og mengun? Koma á jafnrétti kynjanna? Stöðva glæpi og koma á heimsfriði? Myndi maður ekki reyna? Þessar hugmyndir voru mér a.m.k. ofarlega í huga þegar mér bauðst tækifærið síðasliðinn föstudag. Að stjórna heiminum. Í heilar fjórar klukkustundir.
Lesa áfram »Árið 1997 sendi Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns Íslands spurningalista til eldra fólks varðandi tóbakshætti fyrri ára. Þar var meðal annars spurt út í tóbaksnotkun kvenna, hvort hún hafi þótt fín eða subbuleg og hvernig tóbaks þær hafi neytt. Það þarf svosem ekki að koma á óvart að úr svörum heimildarmanna sé það helst að ráða að reykingar og önnur tóbaksnotkun hafi þótt mikið karlasport – staðfesting karlmanna fyrir sjálfum sér og öðrum að þeir væru komnir í fullorðinna manna tölu: Orðnir alvöru karlmenn.
Lesa áfram »