Árið 1997 sendi Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns Íslands spurningalista til eldra fólks varðandi tóbakshætti fyrri ára. Þar var meðal annars spurt út í tóbaksnotkun kvenna, hvort hún hafi þótt fín eða subbuleg og hvernig tóbaks þær hafi neytt. Það þarf svosem ekki að koma á óvart að úr svörum heimildarmanna sé það helst að ráða að reykingar og önnur tóbaksnotkun hafi þótt mikið karlasport – staðfesting karlmanna fyrir sjálfum sér og öðrum að þeir væru komnir í fullorðinna manna tölu: Orðnir alvöru karlmenn.
Lesa áfram »