mánudagur, 28. nóv 2005

Breytingar á sagnfræðinámi — tilkynning frá ritstjórn

Í dag var í stofu 101 í Odda haldinn kynningar- og umræðufundar um nýja námsskipan til BA-prófs í sagnfræði við Háskóla Íslands sem nú er í undirbúningi. Það var sagnfræðiskor HÍ sem stóð að fundinum en til hans var boðið félagsmönnum Sagnfræðingafélagsins og Fróða, félags sagnfræðinema, ásamt kennurum í sagnfræðiskor.

Kennarar í sagnfræðiskor hafa unnið að endurskoðun náms í sagnfræði um nokkurt skeið og er stefnt að því að ný námsskipan á BA-stigi komist til framkvæmda á næsta háskólaári. Tillögur sem undirbúningsnefnd hefur lagt fram voru kynntar og ræddar á fundinum. Frummælendur voru Sveinbjörn Rafnsson, prófessor, Guðmundur Jónsson, prófessor, Páll Björnsson, lektor við Háskólann á Akureyri, Hrafnkell Lárusson, MA-nemi í sagnfræði og Jóhann Hjalti Þorsteinsson, BA-nemi í sagnfræði.

Fundurinn hófst á því að Sveinbjörn og Guðmundur gerðu grein fyrir þeim breytingum sem stendur til að ráðast í. Í kjölfarið fylgdu erindi frá hinum frummælendunum þremur þar sem þeir ræddu tillögurnar, m.a. í samhengi við ríkjandi námsskipun í sagnfræðiskor HÍ.

Hugsandi mun helga þessa viku þessum kynningarfundi. Í dag birtir Hugsandi samantekt Guðmundar Jónssonar á fyrirhuguðum breytingum. Næstu daga væntum við svo að geta birt framsöguerindi þeirra Páls, Hrafnkels og Jóhanns Hjalta.

Við hvetjum fólk til að segja sínar skoðanir á tillögunum, erindunum og öðru þessu tengdu á athugasemdakerfi vefritinsins.

Með góðum kveðjum.
Hrafnkell og Unnur María,
ritstjórar Hugsandi.

Hafðu þitt að segja

Þáttakendur í umræðum við greinar eru vinsamlega beðnir um að tjá sig undir fullu nafni.

Þitt svar:

(verður ekki birt)


Þessi síða

Leita á þessari síðu

Þessi grein


ISSN