Comments on: Brosað í gegnum tárin - Ungfrú Grapevine 2009

By: Ásgeir H Ingólfsson
Er ekki frá því að Íris hafi komust nokkuð nálægt kjarna vandans með þessu:

„konur eiga að vera "vandvirkar og samviskusamar" á meðan "snilligáfa" karla, aðallega ungra karla, liggur í því að þeir geti tekið að sér miklu meiri en þeir ráða við sem samt skilað af sér skítsæmilegu verki.“

Og ég held þetta sé ein ástæðan fyrir því að konur eru miklu fleiri í háskólum á meðan karlar dómínera áfram atvinnulífið. Ég man vel eftir því þegar ég var að útskrifast úr menntaskóla og áttaði mig á því að það var hægt að stimpla alla strákana, þeir voru allir góðir í einhverju einu ákveðnu og það vissu flestir af því - á meðan voru stelpurnar oftast með betri einkunnir, samviskusamari. Ástæðan hefur samt ekki með neina snilligáfu eða neinn eðlismun að gera, frekar það að stelpur fá síður leyfi til þess að vera trassar - sem getur verið nauðsynlegt til þess að sökkva sér ofan í þetta eina, hvort sem það er ljósmyndun, djúpköfun eða eitthvað annað. Þær eiga að standa sig en það er ekki skilgreint neitt frekar, það er eins og þeirri ósanngjörnu kröfu skólakerfisins að gera bara eins og þeim sé sagt“ sé ófrávíkjanlegri fyrir stelpur - og kannski er bottom lænið að það er of stutt síðan húsmóðurhlutverkið taldist eðlileg örlög hverrar konu, og einmitt þess vegna eru þær ekki spurðar nærri því nógu oft hvað þær ætli að verða þegar þær verði stórar?

By: Ásgeir H Ingólfsson
Tek fram að ég held að stelpur séu alveg jafn líklegar til þess að standa við deadline og strákar (en kannski ólíklegri til þess að taka að sér verkefni ef þær eru ekki vissar um að ná deadlæninu?), ég var fyrst og fremst að velta fyrir mér kreppu íslenskra fjölmiðla í breiðara samhengi en endilega kynjuðu - þetta með framleiðslukröfuna hef ég margoft bölvað, kannski of oft í hljóði - en þar sem við erum stödd á akkúrat þessum spjallþræði velti ég fyrir mér hvort að þar sé kynjamunur á eða ekki. Ég er alls ekkert viss um það, þess vegna eru öll þessi kannski - en það er möguleg skýring.

By: Þóra Pétursdóttir
Mig langar að þakka samstarfskonum mínum fyrir frábæra og þarfa rýni.

Ég tek undir með síðustu orðum þínum Íris - auðitað er vandinn risavaxinn og útsmoginn. Þess vegna er líka engin ástæða til þess að fólk sé hér að taka þetta sem persónulegri gagnrýni eða að verið sé að vaða í einn fjölmiðið frekar en annan. Þú sagðir það sjálfur í upphafi Haukur að þér kæmi þessi umræða ekki á óvart. Nema hvað! Þú sýndir jú sjálfur sóma þinn í því að benda á vandamálið í leiðara blaðsins og það er vissulega skref í rétta átt - einmitt vegna þess að það er opinbert ákall eftir frekari umræðu um þetta vandamál. Takk fyrir það!

Og Íris, ég held það sé í lagi að þú endurtakir þig - „Auk þess legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði“ ...og allt það

By: Íris Ellenberger
Þetta er áhugaverður punktur með vandvirknina og áhersluna á framleiðnina hjá Hilmari og Ásgeiri.

Vandamálið er nefnilega líka það að (eins og hundrað manns hafa bent á á undan mér) konur eiga að vera "vandvirkar og samviskusamar" á meðan "snilligáfa" karla, aðallega ungra karla, liggur í því að þeir geti tekið að sér miklu meiri en þeir ráða við sem samt skilað af sér skítsæmilegu verki. Síðan stæra þeir sig af því að hafa bara "rétt byrjað á þessu í gærkvöldi" og tekið "all nighter" á þetta og hljóta hrós fyrir þótt verkið hafa bara verið skítsæmilegt. Ég þekki nokkra karla sem hreinlega stunda þetta og segja já við öllum mögulegum verkefnum þótt þeir viti að þeir hafi ekki tíma til að sinna þeim almennilega. Ég hef aldrei vitað til þess að konu sé hrósað fyrir slík vinnubrögð heldur eru þær iðulega álitnar "fljótfærar og hroðvirknar" ef þær grípa til svipaðra ráða.

Þannig að þetta snýst ekki bara um afrakstur vinnunnar heldur einnig þá merkingu sem lögð er í vinnubrögðin og sú merking er mismunandi eftir því hvort kynið á í hlut.

Þannig að það er alveg rétt, eins og einhver benti örugglega á hér að ofan, að vandamálið er ekki bara að (sumar) konur segja "nei" of oft heldur líka að (sumir) karlar segja "já" of oft. Þetta væri ekki vandamál ef kynin væru dæmd á sama skala en þá erum við aftur að farin að ræða um samfélagsviðmið og samfélagsvandamál þannig að það er líklega best að vísa í umræðuna hér að ofan svo ég fari ekki að endurtaka mig.