Greinar í flokknum Auglýsingar

þriðjudagur, 12. sep 2006

Hvað skal lært og hvert skal haldið? — Í námi „down under“

Brisbane háskóli

Lítið gagn var í fyrirlestrum á þessu sviði á fyrstu önninni og þurfti að þreyfa fyrir sér í myrkrinu með verkefnavinnuna en það hafðist á endanum þrátt fyrir miklar kröfur og of lítið aðhald. Í viðskiptagreinunum var mun betra skipulag, ekki ólíkt því sem bóklegu greinarnar í HÍ hafa, bæði voru fyrirlestrarnir betri og skýrara form á verkefnavinnu auk þess sem kennsluefni var gagnlegra. Nú á annarri önn minni hérna er staðan betri enda gerir maður sér nú grein fyrir kröfunum sem gerðar eru og vinna seinustu annar virðist hafa skilað meiru en útlit var fyrir í fyrstu. Enn er samt einhver ruglingur og stundum þegar maður leitar til kennaranna í listgreinunum með spurningar kemur maður ruglaðari út en þegar maður fór inn.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN