Greinar í flokknum Bókasafns- og upplýsingafræði

föstudagur, 8. feb 2008

Aftur í ljósið með gæsalöppum og allt. Opið bréf til Hrafns Sveinbjarnarsonar.

Það er margt sem Hrafn Sveinbjarnarson veit ekki um bókasafns- og upplýsingafræði. Hann virðist til að mynda halda að skjalastjórn og upplýsingafræði séu samheiti. Svo er ekki. Skjalastjórn er almennt talin ein af undirgreinum upplýsingafræðinnar. Þessi mörk eru óljós en sjálfur tel ég bókasafnsfræðina sjálfa einnig vera undirgrein upplýsingafræðinnar.

Lesa áfram »

föstudagur, 1. feb 2008

Skjalastjórn og samskiptagallar. Skjalavarsla og lög.

Kæra Alfa
Ég þakka ágætt tilskrif, sérstaklega fagna ég því að hafa fengið málefnaleg viðbrögð við hádegisfyrirlestrinum sem ég hélt á vettvangi Sagnfræðingafélags Íslands í Þjóðminjasafni Íslands 15. janúar sl. Orðið samskiptagalli í lok bréfs þíns varð mér þó svolítið umhugsunarefni.

Lesa áfram »

föstudagur, 25. jan 2008

Bókasafnsfræðingar í hreiðri sagnfræðinga? Um skjalastjórnun og skjalavörslu.

Óvirk skjöl veitufyrirtækja Reykjavíkurborgar afhent Borgarskjalasafni í nóvember 2003.

Opið bréf til Hrafns Sveinbjarnarsonar um „Syndaflóðið … eftir vorn dag", erindi flutt í Þjóðminjasafni Íslands þann 15. janúar 2008 og greinina „Óinnvígður brýst í gegnum þoku upplýsingafræðings" sem birtist þann 24. janúar s.l. á www. hugsandi.is.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 24. jan 2008

Óinnvígður brýst í gegnum þoku upplýsingafræðings

Saga er fræðilegt viðfangsefni sagnfræðinga. Með hugmyndum um 90-95 % eyðingu skjalasafna hvort sem þau eru opinbers eða annars eðlis og barnalegum hugmyndum um hvað eru söguleg skjöl og hvað ekki, er skitið í hreiður sagnfræðinga og kássast rækilega upp á þeirra jússur. E.t.v. geta upplýsingafræðingar ekki búist við því að slíku fúski sé tekið af tómlæti af hálfu sagnfræðinga þótt þeir séu óinnvígðir í hin háu upplýsingafræði.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 22. jan 2008

Um skoplegar firrur, hjávísindi og vanþekkingu héraðsskjalavarðar

Skjöl

Ég fór ekki á fyrirlestur Hrafns Sveinbjarnarsonar hjá Sagnfræðingafélaginu um skjalavörslu „Syndaflóðið kemur" þann 15. janúar síðastliðinn en þegar ég heyrði af óánægju meðal bókasafns- og upplýsingafræðinga ákvað ég að lesa yfir hið skrifaða eintak fyrirlestursins sem aðgengilegt er á heimasíðu Sagnfræðingafélagsins.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 19. sep 2006

Stafræn skjöl og sagnfræði — Hvenær getum við talað um stafræna heimild sem upprunalega?

Vélbúnaður

Hvaða hlutar stafrænnar heimildar tilheyra kjarna hennar og hverjir miðlunarmátanum? Þegar við fáumst við hefðbundnar heimildir á borð við segulbandsupptöku af viðtali eða texta vélritaðan á pappír tökum við samstundis eftir því ef tekið hefur verið yfir hluta af upptökunni eða strikað yfir stöku setningar. Hvort krotað hafi verið á spássíurnar. Miðillinn er þannig samofinn innihaldinu. Þessi eining tilheyrir hinsvegar ekki hinni stafrænu nátttúru.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN