Greinar í flokknum Dómar

þriðjudagur, 25. jan 2011

Allir helgidómar eru saurgaðir

gjakapa

Eitt af því sem að bankahrunið afhjúpaði var kreppa íslenskra stjórnmála. Sú kreppa hefur fengið allnokkra umfjöllun í fjölmiðlum og þá er oftast vísað í kannanir á trausti í garð opinberra stofnana. Nálgun Hauks Más á kreppu stjórnmálanna er önnur og frumlegri. Hann nálgast kreppuna í gegnum tungumálið.

Í ritgerðinni „Eitt afskorið smáblóm“ fjallar Haukur Már um innihaldsleysi íslenskrar þjóðmálaumræðu og setur það í samhengi við getuleysi íslenskrar tungu til að takast á við veruleikann. „Íslensk orð hafa ekki skipt sér af veruleikanum síðustu fimmtíu ár“ (s. 22). „Ekkert sem máli skiptir í samtíma okkar á sér hefð frá því áður en tungan var sett í kæli“ (s. 20). Fyrir vikið nær umræðan ekki að snerta á veruleikanum, orðin hafa engin áhrif, það er ekkert í húfi því valdið fer sínu fram handan tungumálsins. Umræðan er ekki umræða heldur þykistuleikur. „Þess vegna erum við í öðru lagi fegin þegar ráðherra kemst í gegnum sjónvarpssal án þess að klúðra ritúalinu“ (s. 21).

Lesa áfram »

þriðjudagur, 20. nóv 2007

Um langan veg. Vangaveltur um bækur, börn og stríð

A long way gone eftir Ishmael Beah

Talið er að um 300.000 börn gegni hermennsku einhvers staðar í heiminum í dag. Ishmael Beah frá Sierra Leone var eitt þessara barna. Hann gaf nýlega út endurminningar sínar, A long way gone sem kemur út í íslenskri þýðingu fyrir jólin.Blöð og tímarit hafa dásamað bókina í bak og fyrir, enda þykir ekki annað við hæfi þegar um svona viðkvæmt mál er að ræða. Hugrekki til að viðurkenna misgjörðir sínar og einlæg iðrun eru hugtök sem vestrænir lesendur kunna vel að meta. Auk þess sem frasar eins og „svipting sakleysis æskunnar“ selja alltaf. Höfundur þessarar greinar las bókina og komst að því að vissulega inniheldur hún misgjörðir, iðrun og æsku sem er allt annað en saklaus. Þrátt fyrir það er hún ekki yfir alla gagnrýni hafin.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN