Greinar í flokknum Frá ritstjórn

þriðjudagur, 4. jan 2011

2011

Ritstjórn Hugsandi óskar lesendum gleðilegs og góðs árs. Eftir örlítið hlé yfir hátíðarnar byrja birtingar nú aftur og verða tvisvar í viku fram að sumri. Fylgist því með á þriðjudögum og fimmtudögum. Einnig má benda á síðu Hugsandi á Facebook en þar er jafnan tilkynnt um birtingu nýrra greina.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 6. júl 2010

Sumar og sól

sun

Hugsandi er komið í sumarfrí. Hér birtast svo aftur pistlar af fullum krafti frá og með fyrstu vikunni í september. Á meðan bendum við á ritsafnið hér að ofan þar sem finna má aragrúa af áhugaverðum greinum frá fyrri árum.

Gleðilegt sumar!

Lesa áfram »

þriðjudagur, 12. jan 2010

Nýtt ár og nýjar greinar

Ritstjórn Hugsandi býður lesendur velkomna aftur eftir pásu yfir hátíðarnar. Nú taka við reglulegar birtingar, á þriðjudögum og fimmtudögum. Þess á milli er tilvalið að kíkja á ritsafn Hugsandi.
Emma Payne, Magnolia, Langmoor Primary, January_319x401

Lesa áfram »

þriðjudagur, 2. sep 2008

Vetrardagskrá á Hugsandi

Ágætu lesendur! Þá er sumarið liðið, farið að hausta og vetrardagskrá gengin í garð á Hugsandi. Héðan af verða birtar tvær nýjar greinar vikulega, sú fyrri á þriðjudegi og sú seinni á fimmtudegi. Góðar stundir.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 19. apr 2007

Gleðilegt sumar

Hugsandi býður lesendum til sjávar og sveita gleðilegt sumar! Birting fellur niður í dag sökum hátíðarhalda.

Lesa áfram »

mánudagur, 25. des 2006

Gleðileg jól!

Jólatré

Hugsandi óskar lesendum sínum og greinahöfundum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Ritstjórn er í jólafríi sem stendur. Næsta grein á Hugsandi mun birtast þriðjudaginn 9. janúar 2007.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 30. maí 2006

Hugsandi skiptir yfir á sumartíma

Kæru lesendur. Þar til í sumarlok verður birtingum á Hugsandi fækkað úr tveim í eina. Við hvetjum dygga lesendur til að njóta sumarsins og halda áfram að líta hér við á fimmtudögum en þá daga ábyrgjumst við ferskt og gott efni.

Ritstjórnin

Lesa áfram »

þriðjudagur, 11. apr 2006

Páskakveðja

Hugsandi óskar lesendum sínum gleðilegra páska!

Næsta grein mun birtast þriðjudaginn 18. apríl.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 15. des 2005

Fimmtudegi breytt í föstudag

Fimtudagsbirtingu þessarar viku hefur vegna óviðráðanlegra aðstæðna verið breytt í föstudagsbirtingu. Við biðjum þá sem fóru fýluferð velvirðingar á þessum töfum og hlökkum til að sjá ykkur aftur á morgun en þá er á matseðli Hugsandi afar ljúffeng og ögrandi grein um götulist í Reykjavík.

Lesa áfram »

mánudagur, 28. nóv 2005

Breytingar á sagnfræðinámi — tilkynning frá ritstjórn

Í dag var í stofu 101 í Odda haldinn kynningar- og umræðufundar um nýja námsskipan til BA-prófs í sagnfræði við Háskóla Íslands sem nú er í undirbúningi.
Frummælendur voru Sveinbjörn Rafnsson, prófessor, Guðmundur Jónsson, prófessor, Páll Björnsson, lektor við Háskólann á Akureyri, Hrafnkell Lárusson, MA-nemi í sagnfræði og Jóhann Hjalti Þorsteinsson, BA-nemi í sagnfræði.
Hugsandi mun helga þessa viku þessum kynningarfundi. Í dag birtir Hugsandi samantekt Guðmundar Jónssonar á fyrirhuguðum breytingum. Næstu daga væntum við svo að geta birt framsöguerindi þeirra Páls, Hrafnkels og Jóhanns Hjalta.

Lesa áfram »

miðvikudagur, 2. nóv 2005

Póstur að utan - tilkynning frá ritstjórn

Á morgun hrindir Hugsandi af stað greinaflokki sem til stendur að verði fastur liður: Póstur að utan. Hér munu íslenskir námsmenn sem stunda nám erlendis lýsa fyrir lesendum upplifun sinni af háskólalífi hið ytra

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN