Greinar í flokknum hugmyndasaga

fimmtudagur, 20. jan 2011

Hinir góðu, hinir illu og útlendingarnir

terror_museum_budapest

Hin ráðandi túlkun á trauma Evrópu fellur undir rökfræði góðs og ills, við og hinir og annað hvort eða. Með þeirri túlkun og söguskilningi sem til að mynda Terror Haza varpar fram vinnum við ekki með þau siðferðilegu viðfangsefni sem við blasa þegar sama sagan endurtekur sig og gömlu óvinum er skipt út fyrir nýja og þeim eignaðir allir þeir eiginleikar sem við viljum ekki kannast við í okkur sjálfum.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 23. mar 2010

Alltaf á mörkunum - hugmyndasaga í Gautaborg

800px-Göteborgs_universitet_-_huvudb

Hugmyndafræði hefur í gegnum hugmyndasöguna verið stillt upp sem andstæða þekkingar og sannleika. Hugmyndafræði gefur skakka mynd af raunveruleikanum, slær ryki í augu fólksins, hún er falsvitund og órar sem tengjast hagsmunum og ekki hlutleysi. Og það sem meira er, hugmyndafræði er tengd pólitík og pólitík er eitthvað sem á að halda fjarri vísindunum. Eða, með öðrum orðum: vísindin eiga að vera laus við og óháð pólitík. Vísindin fjalla um þekkingu en pólitík hverfist um skoðanir.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN