Þó undarlegt megi virðast hefur mannkynið nú þegar sameinast í tebollanum. Tedrykkjan er eini asíski viðhafnarsiðurinn sem nýtur virðingar um heim allan. Hvíti maðurinn gerir gys að trúarbrögðum okkar og siðfræði, en hann hefur óhikað gert sér þennan mórauða drykk að sínum. Síðdegiste er mikilvæg athöfn í vestrænum þjóðfélögum. Blíðlegt glamur bakka og undirskála; kliðmjúk, kvenleg gestrisni, og almennar yfirheyrslur um rjóma og sykur eru til vitnis um það að tilbeiðslan á teinu er komin til að vera. Með stóískri ró gengur gesturinn á vald örlaganna sem leynast í dulúðugu seyðinu, og á því andartaki ríkir andi Austursins einn.
Lesa áfram »"Teið er ekki eins og vínið, sem ýtir undir hroka, það er ekki eins og kaffið, sem gerir okkur sjálfhverf, né heldur er það eins og kakóið, sem breytir okkur í hjákátleg meinleysisgrey."
Bókin um te er óvenjulegt og skemmtilegt rit. Með umfjöllun sinni um þær japönsku listgreinar sem koma saman í tesiðaathöfninni og heimspekina sem liggur henni að baki gerir Okakura grein fyrir siðfræði og fagurfræði Japana í heild. Okakura er snjall penni, óspar á gífuryrði og litríkt myndmál en einnig beittur í hugsun og hvass í gagnrýni sinni á nútímasamfélagið. Því hefur Bókin um te margt til að bera og höfðar hún ekki aðeins til áhugamanna um te-siðinn, heldur til allra þeirra sem láta sig austræna menningu og heimspeki einhverju varða.
Lesa áfram »