Greinar í flokknum Listir

þriðjudagur, 29. jún 2010

GET A LIFE! - tilraun til að afbyggja sívaxandi neyslusamfélag

2

Við í Kviss búmm bang leitumst við að opna fyrir hina ýmsu möguleika sem leikverk hefur upp á að bjóða. Vinnuaðferðir okkar eru að búa til heima þar sem fólk kemur og tekur þátt, til lengri tíma, í sviðsettum aðstæðum sem teygja sig inn í þeirra eigin líf og hversdagsleika þess. Okkur langaði til að halda áfram að vinna verk sem vara lengi og búa til verk með skyndilausnir samtímans að útgangspunkti. Úr varð GET A LIFE! 6 vikna átaksnámskeið þar sem 35 skráðir þátttakendur mættu vikulega, í 6 skipti alls, 2 klst í senn, í fyrirlestrarsal í miðbæ Reykjavíkur. Í kynningu verksins var fólki lofað „hinni fullkomnu endurnýjun á lífi sínu.“

Lesa áfram »

þriðjudagur, 9. feb 2010

Stelpur í uppistandi - Um konur og húmor á almannafæri

microphone-with-stand-thumb-250x250-1233

Nú mætti velta fyrir sér hvort að mýtan um húmor sem einkavígi karla sé raunverulega með lífsmarki í samfélaginu eða hvort að allir viti að slíkar feðraveldiskreddur séu aðeins deyjandi myglublettur í þeim fúla forapytti sem bloggheimar geta stundum verið. Það sem er óumdeilanlegt er þó að konur eru ótrúlega sjaldséðar á uppistandssviðinu, hverjar svo sem ástæðurnar kunna að vera fyrir því. Það var einmitt undrun á þessu stelpuleysi í uppistandi sem að fékk vinkonu mína, Þórdísi Nadiu Semichat, til þess að stofna facebook-hóp í vor, þar sem hún auglýsti eftir stelpum sem hefðu áhuga á að vera með uppistand. Fjölmargar stelpur lýstu yfir áhuga og nú, nokkrum mánuðum síðar eru komnar fram ellefu stelpur sem nýlega héldu tvö uppistandskvöld þar sem þær troðfylltu Næsta bar og allt ætlaði um koll að keyra.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 4. feb 2010

Hvað er þetta?

BrianJungen_Prototype
Prototype (Brian Jungen)

Eruði búin að finna eitthvað?“ er spurningin sem glymur í eyrum allra fornleifafræðinga á tímabilinu júní-ágúst ár hvert og jafn erfitt er að svara henni í hvert sinn. Kannski er það vegna þess að það er erfitt – og einkennilegt – að vera sífellt að svara sömu spurningunni, en líka vegna þess að oftast nær finnst manni svarið liggja í augum uppi; „Hvað heldurðu maður! Auðvitað erum við búin að finna eitthvað!“ Það flóknasta við spurninguna er þó líklega það að þetta „eitthvað“ sem spurt er um er auðvitað ekki bara eitthvað heldur verður það að vera eitthvað – til þess að það þýði eitthvað! Og þar á hnífurinn til að standa í kúnni.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 17. sep 2009

illur

illugi_eysteinsson

Mánudaginn 19. mars 2001 hitti ég Illuga til að ræða við hann um þessa grein. Það fyrsta sem hann sagði: „Þarna varstu sniðugur, því þú hefðir ekki getað valið listamann sem hefur gert minna en ég, því verður þetta ansi stutt grein hjá þér.“ Vissulega er þetta rétt hjá honum, þó ekki að því leyti að ég valdi að skrifa um hann vegna þess hve hann hefur gert lítið, heldur að ferill hans sem listamaður er ekki mjög langur, en aftur á móti hefur hann lagt sitt framlag til íslenskrar myndlistasögu. Þegar ég vitna beint í Illuga þá er það byggt á viðtali mínu við hann, áðurnefndan mánudag.

Lesa áfram »

miðvikudagur, 20. maí 2009

Leonardó da Vinci. Ævi og afhelgun.

382px-leonardo_self

„Homo universalis“, furðufugl sem óð úr einu í annað, rannsakaði ótrúlega mikið af hlutum og fyrirbrigðum, skrifaði hugmyndir sínar með spegilskrift, hafði áhuga á fegurð og friði, en hannaði hertól og teiknaði angist manna rétt fyrir aftökur, þetta er Leonardó da Vinci. Litið var á Leonardó sem meistara og jafnvel goð, hann var upphafin strax eftir dauða sinn og engin listamaður gat nálgast hann að verðleikum. Á 17. og 18. öld var talað um hann í skólum sem besta listamann sögunnar. Á 19. öld fara þó gagnrýnisraddir að heyrast um það að hann hafi í raun verið ósköp venjulegur maður. Hann er þó ekki afhelgaður, ef þannig má komast að orði, fyrr en í byrjun 20 aldar. Það var gert með ritgerð Sigmund Freud um æsku Leonardós.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 15. jan 2009

Ég hef mjög löggiltan smekk!

Hlussa

Á haustmánuðum 2008 kom út bókin Andi Reykjavíkur eftir Hjörleif Stefánsson. Bókin hefur verið sögð þarft innlegg í umræðu sem hefur stigmagnast á síðustu mánuðum og árum, nú síðast í umræðunni um fyrirhugaða nýbyggingu Listaháskóla Íslands við Laugaveg og í uppkaupum borgarstjórnar á húsunum við Laugaveg 4 og 6. Vissulega var umræðan um hús fyrir listaskóla og gömul timburhús í miðborginni mjög fyrirferðamikil síðstu misseri fyrir "hrun„ en hvað hefur sú umræðan skilið eftir sig? Var hún hugsanlega einungis bitbein misvísra borgarfulltrúa? eða verður hún til þess að efla faglega umræðu um byggingar- og skipulagsmál í landinu? en skortur virðist vera á faglegri umræðu um byggingarlist í landinu.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 18. des 2008

Íslendingar undir hæl ímyndarinnar? Íslensk menning á hátíðinni Les Boréales í Frakklandi

Les Boreales

17.-30. nóvember sl. var Ísland á allra vörum í Caen og nágrenni. Margir helstu rithöfunda íslensku þjóðarinnar lögðu leið sína til borgarinnar og tóku þátt í pallborðsumræðum og viðtölum auk þess sem þeir hittu grunn- og framhaldsskólanemendur út um borg og bæi í syðri hluta héraðsins. Meðal þeirra voru Sjón, Steinunn Sigurðardóttir, Guðrún Eva Mínervudóttir, Kristín Marja Baldursdóttir, Árni Þórarinsson, Arnaldur Indriðason, Sigurður Pálsson og Jón Hallur Stefánsson. Efnt var til kvikmyndaveislu þar sem Frökkum var boðið að grandskoða og ræða kvikmyndir Friðriks Þórs Friðrikssonar, Sólveigar Anspach, Dags Kára, Baltasars Kormáks og Stúdíó Caoz. Tónlist lék einnig stórt hlutverk og ber þar helst að nefna tónleika Hamrahlíðarkórsins, Mr. Silla & Mongoose, Ghostdigital og Biogen auk kvikmyndatónleika Barða Jóhannssonar við sænsku kvikmyndina Häxan. Íslenski dansflokkurinn var einnig í öndvegi og hélt Frakklandsfrumsýningar á fimm dansverkum. Norrænudeild háskólans í Caen skipulagði málþingið L’Islande dans l’imaginaire um ímyndað Ísland með þátttöku 12 fræðimanna frá Frakklandi, Bretlandi, Bandaríkjunum og auðvitað Íslandi. Þá eru ótaldir margs konar listviðburðir, pallborðsumræður og sýningar. Það þarf því enginn að velkjast í vafa um að hátíðin er gríðarstór og gegnir þar af leiðandi mikilvægu hlutverki í að miðla og móta ákveðna ímynd af Íslandi. En hver skyldi sú ímynd vera þetta árið, svo stuttu eftir skipbrot íslenska efnahagskerfisins sem hefur svert orðspor Íslands í mörgum heimsins löndum?

Lesa áfram »

þriðjudagur, 7. okt 2008

Af upphafi brúðuleikhúss á Íslandi

eldfaerin1

Leikbrúðulist er ævagömul listgrein sem á sér langa og ríka hefð í ýmsum menningarsamfélögum. Elstu heimildir um leikbrúður ná allt aftur til Egypta til forna, en þeir notuðu heilagar brúður við trúarathafnir sínar. Það eru hins vegar rétt rúmlega fimmtíu ár frá því að fyrsta brúðuleikhúsið var stofnað á Íslandi.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 11. sep 2008

Nýtt nám í Copenhagen Business School

solbjerg_billede_2
Copenhagen Business School

Fyrir ári síðan hóf ég mastersnám í stjórnun í skapandi viðskiptaferlum (e. Management of Creative Business Processes). Ég hef mjög oft verið spurð hvað í ósköpunum það er nú og mér hefur fundist best að lýsa því sem master í stjórnun innan skapandi atvinnugeira (listir, menning og afþreying) eins og t.d. fyrirtæki sem gefa út eða framleiða tónlist, kvikmyndir, bækur, tímarit, tölvuleiki, fatnað, húsgögn, leikföng o.s.frv. Enda er markmið námsins að gera nemendur hæfa til að taka stjórnunarstöður í skapandi fyrirtækjum og er mikil áhersla lögð á að finna rétta jafnvægið á milli þess að hlúa að sköpunargáfu listamannsins og að reka arðbært fyrirtæki.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 28. jún 2007

Góð börn fara til himnaríkis, tónlistarunnendur fara til hljóðfærahelvítis

Hljóðfærahelvítið

Helvíti Bosch endurspeglar bölsýni samtímans og trúna á þau hroðalegu örlög sem syndugt mannkynið átti yfir höfði sér. Tákn leika þar stórt hlutverk meðal annars til að sýna áhorfandanum fyrir hvaða löst er refsað hverju sinni. Táknin eiga gjarnan rætur sínar að rekja til hollenskrar þjóðtrúar en einnig eru sum þeirra persónuleg sem veldur því að verk Bosch eru að hluta illskiljanleg í dag. Eitt slíkra verka er hægri vængur þrímyndar sem er gjarnan kölluð Garður veraldlegra lystisemda (um 1504) eftir aðalviðfangsefni myndarinnar. Vængurinn sýnir refsingar syndugra manna og kvenna í helvíti en líkt og í öðrum verka hans eru tákn lykillinn að merkingu myndarinnar í heild sem og smærri eininga.

Lesa áfram »

föstudagur, 16. des 2005

Fegurð götunnar

Götulist

Það er áberandi í umræðunni um hið svokallaða veggjakrot að tilvist þess sé lýti á samfélaginu. Einhverskonar æxli eða ónáttúra sem beri að uppræta. Við teljum að þessu sé einmitt þveröfugt farið. Opinber tjáning er merki um heilbrigt samfélag. Merki um að hinir raddlausu finni sér stað til þess að tjá sig þar sem heyrist til þeirra. Við teljum að hin hefðbundna list sé löngu slitin úr tengslum við veruleikann. Götulistin ER veruleikinn.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN