
Múslimum hefur fjölgað í ríkjum Evrópusambandsins (ESB) hin síðustu ár, en nokkuð skortir á heimildir um fjölda þeirra. Þó má telja að árið 2005 hafi 13 eða jafnvel 15 milljónir múslima búið í aðildarlöndum ESB eða rúmlega 3% íbúa. Múslimar eru hlutfallslega fáir í Evrópu miðað við fjölda þeirra á heimsvísu, en álitið er að 1,57 af 6,8 milljörðum íbúa jarðar teljist múslimar. Lítið hefur farið fyrir faglegri rýni í aðstæður múslima á Vesturlöndum þó svo að fræðasamfélagið hafi tekið eitthvað við sér í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar á tvíburaturnana 11. september 2001. Á hinn bóginn hefur fælni í garð múslima verið nokkuð áberandi og jafnvel farið vaxandi. Þannig sýnir viðhorfsrannsókn sem IMG Gallup vann fyrir Rauða Kross Íslands árið 2005 að tæpur fjórðungur Íslendinga er ósáttur við að hafa múslima sem nágranna. Markmið þessarar greinar er að veita smá innsýn í umfjöllun fræðimanna um íslamfælni.
Lesa áfram »
Elsta frásögnin sem greinarhöfundi er kunnugt um varðandi fjölmenningu er að minnsta kosti 2.500 ára gömul en í fyrstu Mósebók1 er greint frá því að manneskjan hafi eignast fjölmörg tungumál og upp frá því hafi henni reynst erfiðara að ná saman sem samfélag fólks á þeirri plánetu sem við kjósum að kalla jörð. Í þeim anda má ætla að samskipti milli menningarheima hafi fylgt mannkyninu og væri vissulega áhugavert að kafa djúpt ofan í þá sögu. En það er ekki viðfangsefni þessarar greinar heldur er valið að horfa á samtímann og örfá ár aftur í tímann og setja fram nokkra þanka um fjölmenningu.
Lesa áfram »
Fátt hefur jafn víðtæk og djúpstæð áhrif á hugmyndaheim fólks og trúarbrögð. Mótunin fer aðallega fram með kennslu kenninga og athafna trúarinnar. Við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir hversu mikil þessi áhrif eru en nauðsynlegt er að skyggnast undir yfirborðið öðru hvoru og kanna hvaða samfélagssýn má lesa út úr trúartextum og athöfnum. Hér verður sjónum beint að búddískum skrifum og hvað þau segja okkur um afstöðu þeirrar trúar til valds, kúgunar og stéttskiptingar.
Lesa áfram »
Hvítasunnuhreyfingar njóta sívaxandi fylgis í Afríku og telja margir að ýmsar áherslur í boðskap þeirra, sérstaklega varðandi hagsæld, skýri vinsældir og öra útbreiðslu þeirra í samtímanum, á tímum hnattvæðingar og breyttrar heimsmyndar. En í hverju felst sérstaða hvítasunnuhreyfingarinnar í kristinni trú?
Lesa áfram »