Þeir sem stefna á ferð um England ættu ekki að láta heimsókn til Eden Project í Cornwall fram hjá sér fara. Eden Project, eða Eden-verkefnið, er nokkurs konar heimsgrasagarður sem settur var upp í þyrpingu risavaxinna gróðurhúsahvelfinga sem reistar voru á gömlu námusvæði árið 2001. Markmið þeirra sem standa að Eden-verkefninu er að kynna fyrir gestum jurtir frá öllum heimshornum og gera fólki grein fyrir þeirri þörf sem mannkynið hefur fyrir gróðurinn. Án plantna væri ekkert súrefni og ekkert líf á jörðu. Og ekki má gleyma að meiri hluti fæðu jarðarbúa, klæðum, húsaskjóli og lyfjum á uppruna sinn í jurtaríkinu.
Í risavöxnum hvelfingum Eden hefur ótrúlegum fjölda plantna verið safnað saman. Þar er einnig miklum fróðleik um samband umhverfis, gróðurs og manna miðlað á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt. Eden Project er skipt upp í mismunandi búsvæðabelti og í gróðurhúsahvelfingunum er líkt eftir þeim lífsskilyrðum sem plönturnar búa við á sínum heimaslóðum. Plönturnar eru allar ræktaðar af fræjum og afleggjurum frá gróðrarstöðvum, rannsóknarstöðvum og grasagörðum hvaðanæva að úr heiminum. Í hvelfingunum eru skordýr, fiðrildi, fuglar og eðlur notuð sem lífrænar varnir gegn plágum sem herja á gróðurinn.
Hitabeltishvelfing Eden-verkefnisins er stærsta gróðurhús í heimi og þekur hvelfingin 15.590 fermetra, hún er 55 m há, 100 m breið og 200 m löng. Í hitabeltishvelfingunni upplifa gestir regnskógaumhverfi, kynnast því hversu stóru hlutverki hitabeltisplöntur gegna í daglegu lífi fólks um heim allan og fræðast um hvað þurfi til að svo megi vera áfram um ókomna tíð.
Í annarri stórri hvelfingu, sem þekur 6.540 fermetra, er 35 m há, 65 m breið og 135 m löng, kynnast gestir heittempruðu loftslagi og fjölbreyttum plöntum frá ýmsum löndum s.s. Suður-Afríku, Kaliforníu og Miðjarðarhafslöndunum. Þar ganga gestir meðal annars um á meðal gróskumikilla appelsínu- og sítrónutrjáa og í gegnum ólífulundi.
Á útisvæðinu, sem nær yfir 30 ekrur, eru svo kynntar til leiks plöntur frá norðlægari slóðum. Þar er einnig safn ýmissa plantna sem breytt hafa heiminum og meðal þess gróðurs sem þar er að finna eru hampur, sólblóm og teplöntur. Eden er líflegur staður og þar er eitthvað um að vera allt árið um kring. Yfir sumartímann eru haldnir þar fyrirlestrar, námskeið og settar upp vinnustofur, auk tónleika, leik- og listsýninga. Á haustin er áherslan á grænmetisuppskeruna og yfir vetrarmánuðina er útisvæðið upplýst með fjölda ljósasería. Á vorin geta gestir svo notið stórkostlegs sjónarspils þegar 800.000 laukar, krókusar, páskaliljur og túlípanar, byrja að blómstra í febrúar og fram á vor.
Nánari upplýsingar um þetta merka verkefni er að finna á heimasíðu Eden Project: www.edenproject.com