Í ritstjórnarstefnu Hugsandi hétum við því að leggja metnað í það að kom með ný umfjöllunarefni inn í íslenska fræða- og menningarumræðu og einnig að taka til umræðu efni sem gjarnan mættu njóta umræðu annars staðar en á kaffistofum hinna ýmsu háskólabygginga. Í samræmi við þessi fyrirheit okkar hefur vefritið Hugsandi þannig þrátt fyrir ungan aldur þegar tekið til umræðu bæði teiknimyndir, ímynd sauðkindarinnar og tilvistarlegan vanda söngelskra kvikmyndastjarna. Eitt af hugðarefnum aðstandenda Hugsandi, sem við teljum aldrei nóg rætt um, er háskólanám og líf og tilvera námsmannsins.
Á morgun hrindir Hugsandi því af stað greinaflokki sem til stendur að verði fastur liður: Póstur að utan. Hér munu íslenskir námsmenn sem stunda nám erlendis lýsa fyrir lesendum upplifun sinni af háskólalífi hið ytra, sér í lagi hvað varðar fræðilegar áherslur náms og háskólasamfélagsins en einnig hvað varðar daglegt líf og aðbúnað. Greinin sem birtist á morgun er eftir Björk Þorleifsdóttur sagnfræðing er nú leggur stund á Mastersnám í sagnfræði við St. Andrew háskólann í Edinborg í Skotlandi.
Við viljum hvetja lesendur Hugsandi til að notfæra sér athugasemdakerfi síðunnar. Í gegnum það má koma á framfæri gagnrýni, hrósi eða ábendingum við einstakar greinar. Athugasemdirnar birtast neðan við greinarnar og þar er einnig að finna gluggann sem skrifa má athugasemdirnar í. Sjálf vefsíðan er enn í þróun og á ýmislegt enn eftir að bætast við á hana. Verða þær breytingar verða kynntar síðar.
Að lokum viljum við þakka þeim sem þakka ber og færa Mannfræðistofnun Háskóla Íslands og Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands sérstakar þakkir fyrir þeirra stuðning.
Með góðum kveðjum.
Hrafnkell og Unnur,
ritstjórar Hugsandi.