þriðjudagur, 16. mar 2010

Róstur fyrir áhugamenn um breytta tíma

23831_101185819917578_100000784826478_30787_4029837_n

Nýr prentmiðill hefur litið dagsins ljós, eins og nafn hans gefur til kynna á hann ekki að fjalla um nýjustu strauma í tísku eða innanhúsarkitektúr, nei! Róstur á að vera steinninn sem gárar heiðblátt vatnið í íslenskri fjölmiðlun. Blaðið minnir um margt í broti og útliti á erlend blöð af sósíalískum og anarkískum ættum. Myndir eru með minnsta móti og er greinilega ætlað að taka sem minnsta athygli frá textanum sem flæðir um síðurnar, Já innihaldið er það sem skiptir máli.

Róstur er mánaðarrit, því er ætlað að vera frjálst og óháð fjármagnseigendum, fyrirtækjum og þjóna almenningi. Engar eru auglýsingatekjurnar og á því blaðið að lifa á frjálsum framlögum lesenda. Þetta er auðvitað hugsjónastarf og er gróðahugsjónin fyrir borð sett.

Já segi ég, einhvern veginn hljómar ekkert af þessu illa, fjölmiðlar hér á landi keppast við að birta myndir af andstæðingum eigenda sinna þreytulegum á svip á bekkjum alþingis eða innlit inn í íbúð í vesturbænum fulla af Bang & Olufsen græjum, því er Róstur sem hressilegur andblær inn í þessa döpru blaðaflóru. Hér er allt í einu lesefni sem dugar í fleiri en eina klósettferð.

Á baksíðu blaðsins eru rituð nöfn þeirra sem standa að blaðinu og er kynjahlutfallið jafnt! Þetta sætir furðu, ég taldi meira að segja einni fleiri konu. Vei, getur það verið að konur geti skrifað um svona mikilvæga hluti eins og heimsmálin? Það eru að sjálfsögðu ekkert nema góðar fréttir, en líka grunnforsenda fyrir því að tekið sé mark á þessum hugsjónasnepli.

Í leiðara blaðsins kemur fram að eftir að efnahagurinn tók dýfu hafi fólk hér á landi fengið meiri áhuga á auknu lýðræði og betra stjórnskipulagi. Útgáfufélagið heitir einmitt Áhugamannafélag um breytta tíma sem er lýsandi yfir andann sem fylgir þessu blaði og blæs manni von í brjóst að sá hópur stækki og Bang & Olufsen hópurinn minnki jafnvel aðeins.

Það sem mér þykir áhugaverðast við þetta blað er einmitt það að ekki er verið að velta sér upp úr þessu margumtalaða „hruni“ eins og svín í drullu, eins og enginn hafi það verr í heiminum en við sem erum klyfjuð erlendum lánum. Fyrsta greinin fjallar á mjög svo jarðbundinn hátt hvort það sé ástæða fyrir bölsýni um ástandið hér á landi. Besta fyrirsögnin verður þó að vera „Bjarni vill meiri hagsmunatengsl“, grein sem fjallar um orð Bjarna Benediktssonar sjálfs eða hvað hann myndi gera ef hann fengi nú að stjórna. En umfram allt þá eru bitastæðar greinar um ástandið í heiminum ekki bara um okkar litla horn hérna norður í úthafi: skelfilegt ástandið í Haítí, efnahagsvanda Grikkja, ástandið í Nígeríu, ástandið í námahéraði Indlands og samsekt okkar hinna svo ekki sé minnst á spellvirki einkarekins hers á vegum Bandaríkjanna. Ég verð að viðurkenna að ekki hafði ég grænan grun um að jafn satanískt fyrirbæri og einkarekinn her væri einu sinni til. Viðtal við flóttamanninn Henry Turay er fróðlegt og staðreyndir um hvernig við rekum flóttamenn endalaust á brott er sláandi.

Menningarumfjöllun blaðsins þótti mér áhugaverð en kannski er hún á skjön við tíma og ekki beint í núinu: Ritdómur um Börn Sanchez sem kom út 1961 og kvikmyndaumfjöllun um spænska mynd frá árinu 1973. Ritdómurinn þótti mér þó sérstaklega áhugaverður því sú bók hefur einmitt setið í bókahillunni minni ólesin heillengi. En þó að blaðið fjalli um nokkrar margtuggnar kenningar og greinar innan akademíunnar eins og fegurðarmýtu Naomi Wolf finnst mér þær enn eiga mikið erindi svo ekki sé minnst á snilldarlega sálgreiningu á íslenskri frjálshyggju.

Hvar getur þeim orðið á í ritstjórn Rósta? Kannski hvergi sé hugsað til dagblaðanna í dag. Kannski er helsta gryfjan sú að blaðið verði skinheilagt eða predikandi. Róstur verður að valda ókyrrð til þess að standa undir nafni, ókyrrð meðal fólks, íhaldsins og allt til gamalla byltingarsinna.

Róstur má ekki tala niður til fólksins heldur verður að vera skrifaður af fólkinu fyrir fólkið. Líst mér vel á fyrsta tölublað þessa mánaðarrits og vonandi fær það næga styrki til þess að halda áfram. Þótt flestir prentmiðlar hér berjist í bökkum er það staðreynd að hér er nóg pláss á markaðnum fyrir aðrar skoðanir og fleiri hliðar á málunum.

Eitt svar við Róstur fyrir áhugamenn um breytta tíma

  1. Reyndar er engin grein um efnahagsástandið í Grikklandi í Róstum - hún hefst einungis á setningu um að flestar fréttir frá Grikklandi í dag séu um efnahagsvanda ríkisins.

    Greinin í Róstum er hins vegar um borgarskæruhernað og óeirðir sem eiga sér stað í landinu - í auknu mæli síðan hinn 15 ára Alexis var skotinn í desember 2008 - og ríma við andóf anarkista annars staðar í heiminum: Yfirtökum allt - krefjumst einskis!

    Þakka samt sem áður góða umfjöllun og bendi á http://www.rostur.org

    Snorri Páll Jónssonskrifaði klukkan 18.3.2010 11:29

Hafðu þitt að segja

Þáttakendur í umræðum við greinar eru vinsamlega beðnir um að tjá sig undir fullu nafni.

Þitt svar:

(verður ekki birt)


Þessi síða

Leita á þessari síðu

Þessi grein

Greinar af handahófi


ISSN