föstudagur, 17. feb 2006

Söguslóðir — vefsetur um íslenska sögu og sagnfræði

Söguslóðir - logo

Fyrir tæpum tveimur árum var vefsetrið Söguslóðir opnað. Vefsetur sem enginn áhugamaður um sagnfræði ætti að láta fram hjá sér fara! Heimildir um íslenska sögu og sagnfræði hafa í auknu mæli verið gefnar út á rafrænu formi, en fram til þess tíma að Söguslóðir voru opnaðar var ekkert vefsetur starfrækt sem hafði að geyma allar helstu upplýsingar um þær.

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands stendur að vefsetrinu og tilgangur þess er að veita fólki aðgang að rafrænum gögnum sem nýtast bæði til rannsókna, kennslu og náms í sagnfræði á háskólastigi. Söguslóðir hýsa fjölbreytilegar upplýsingar um nám, rannsóknir, heimildir og verkefni í íslenskri sagnfræði sem koma sagnfræðingum, sagnfræðinemum og öðru áhugafólki um íslenska sögu að gagni. Má þar nefna ritaskrár yfir grundvallarheimildir í íslenskri sögu. Sú stærsta er Íslandssaga í greinum sem hefur að geyma skrá yfir rúmlega tíu þúsund greinar um sögu Íslands. Annað mikilvægt gagnasafn er Lokaritgerðir í sagnfræði við Háskóla Íslands sem nær yfir tímabilið 1954 til 2005. Efnisskrár Skírnis, Sögu, Sagna og Nýrrar sögu eru að finna á vefnum sem og ýmsar textaheimildir, myndir og kort á rafrænu formi. Á vefsetrinu má einnig finna upplýsingar um nám og kennslu í sagnfræði á háskólastigi, rannsóknarverkefni sem lokið er og standa nú yfir og rannsóknasjóði sem styrkja sagnfræðirannsóknir. Jafnframt eru upplýsingar um allar helstu íslensku vefsíðurnar sem tengjast íslenskri sagnfræði á einn eða annan hátt að finna á vefsetrinu. Tilkynningar um fyrirlestra, fundi og sýningar sem varða íslenska sögu og sagnfræði eru færðar inn á Söguslóðir eftir fremsta megni.

Allt frá opnun Söguslóða hefur Guðmundur Jónsson prófessor haft umsjón með setrinu en sagnfræðinemar hafa einnig átt þátt í mótun þess. Jón Sigurður Friðriksson BA nemi í sagnfræði setti vefinn upp að mestu leyti. Jón og Íris Ellenberger, MA nemi í sagnfræði, unnu að efnissöfnun og efnisflokkun í samráði við Guðmund Jónsson og settu jafnframt inn fyrstu skrárnar og textana á síðuna. Fram í júní 2005 sáu Íris og sú sem þetta skrifar (sem þá stundaði MA-nám í sagnfræði) um daglegan rekstur Söguslóða. Fyrst um sinn snérist sú vinna einkum um að kynna vefsetrið, bæta inn upplýsingum eftir ábendingum frá lesendum og færa inn tilkynningar um viðburði sem tengdust íslenskri sagnfræði á einn eða annan hátt. Nú orðið hefur dregið talsvert úr vinnunni sem lýtur að vefsetrinu og því var ákveðið síðastliðið sumar að ég sæi ein um daglegan rekstur þess.

Heimasíða Söguslóða er http://www.soguslodir.hi.is. Ef þið, lesendur góðir, hafið tillögur um efni sem gæti átt erindi á Söguslóðir hikið þá ekki við að senda þær á netfangið soguslodir@hi.is

Hugsandi vill þakka Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands veittan stuðning.

Hafðu þitt að segja

Þáttakendur í umræðum við greinar eru vinsamlega beðnir um að tjá sig undir fullu nafni.

Þitt svar:

(verður ekki birt)


Þessi síða

Leita á þessari síðu

Þessi grein

Greinar af handahófi


ISSN