Sumarið 1968 náði ung kona að nafni Valerie Solanas að skrá nafn sitt í sögubækurnar. Það ár var hún handtekin fyrir að særa listamanninn fræga, Andy Warhol, lífshættulega. Ári seinna var áróðursrit hennar gegn karlmönnum gefið út í Bandaríkjunum, en hún sat þá í fangelsi fyrir glæp sinn. Ekki margir þekkja sögu þessarar konu; hvernig leiðir hennar og Andy lágu saman og hvað rak hana til að reyna að binda enda á líf hans þrátt fyrir að saga hennar hafi verið innblástur að kvikmyndinni I shot Andy Warhol, sem kom út 1996.
Árásin á Andy eða kvikmyndin um líf hennar er þó ekki tilefnið af grein þessari heldur langþráð íslensk þýðing dr. Usla á SCUM manifesto, áróðursriti Valerie Solanas.
Hver var Valerie Solanas?
Valerie Solanas fæddist í New Jersey 9. apríl 1936. Hún flutti ung með móður sinni til Washington þar sem hún ólst upp með henni og stjúpföður sínum. Hún var send 15 ára í kaþólskan heimavistarskóla en samkvæmt sumum heimildum átti hún barn þar sem var ættleitt. Valerie var afburðaklár og eftir miðskóla fór hún í Háskólann í Maryland þar sem hún nam sálfræði. Eftir námið í Maryland tók hún eitt ár í meistaranámi í háskólanum í Minnesota. Háskólalífið átti illa við Valerie, sem gat ekki séð að námið ætti erindi við konur á meðan allar rannsóknar- og prófessorsstöður væru fráteknar fyrir karlmenn. Eftir að hafa ferðast um Bandaríkin settist hún að í Greenwich Village í New York 1966. Hún hélt sér uppi með því að stunda vændi. Valerie var alla tíð opinská um samkynhneigð sína og bjó meðal annars með konu í New York.
Valerie eyddi mörgum stundum við ritvélina og 1967 skrifaði hún meðal annars handrit að leikritinu Farðu í rassgat (e. Up Your Ass ) og SCUM Manifesto sem Nýhil gaf út í haust í íslenskri þýðingu.
S.C.U.M.
SCUM-ávarp Solanas var upphaflega gefið út af Olympia Press í ágúst 1968. Valerie hafði verið í samskiptum við útgefandann Maurice Girodas áður en hún skaut Andy, en hann hafði sýnt verkum hennar áhuga og gefið henni einhvern pening. Í sumum heimildum eru líkur leiddar að því að daginn sem Valerie skaut Warhol hafi hún einnig farið til Girodas til að skjóta hann en hann ekki verið við. Heimildum ber ekki alltaf saman um atburði í kringum Valerie enda algjört ólíkindakvendi.
Texti Valerie í SCUM Manifesto er femínískur, róttækur og anarkískur. Allt ávarpið byggir á þeirri hugmynd að karlmenn séu ófullkomnar konur. Það kerfi sem Valerie bjó við sagði hún vera byggt í kringum karllæga galla til að fela þá og/eða upphefja. Peningakerfið sagði hún mikilvægasta þáttinn í því kerfi því að án peninga hefðu karlmenn ekkert til að stefna að. Hún sagði karlmenn ábyrga m.a. fyrir stríði, kynþáttafordómum, hindrun á einkalífi, valdníðslu og stjórnvöldum, formlegri menntun, samkeppni, kynhneigð, leiðindum, ritskoðun, vantrausti, hatri, ofbeldi, sjúkdómum og dauða.
Trúarbrögð sagði Valerie vera uppfinningu karlmannsins. Karlmaðurinn væri meðvitaður um ófullkomnun sína og því vansæll. Hann vissi að hann gæti aldrei orðið hamingjusamur í lifanda lífi og hefði því fundið upp himnaríki.
Í ávarpinu boðaði Valerie m.a. fríar samgöngur, endi hins hefðbundna pars karls og konu, flæði kvenna á vinnumarkað, anarkisma og útrýmingu karlmanna – þ.e. allra karlmanna sem ekki tilheyrðu the Men’s Auxiliary eða meðreiðarsveina SCUM. Í þeim hópi voru m.a. karlmenn sem unnu að því með SCUM að útiloka aðra karlmenn; karlar sem drápu aðra karla, blaðamenn, rithöfundar, útgáfustjórar og fleiri sem studdu útbreiðslu hugmynda SCUM, ásamt karlmönnum sem voru tilbúnir til að gefa frá sér alla peninga.
Solanas sagði sjálf að ávarpinu mætti skipta upp í tvo hluta. Fyrri hlutinn væri sálfræðigreining á karlmönnum en seinni hlutinn aðgerðaáætlun um hvernig ætti að bregðast við ástandi þeirra
Solanas hamraði á því í viðtölum á áttunda áratugnum að SCUM stæði fyrir óæðri stöðu konunar í karllægu kerfi félagslegra gilda. Í samfélagi þar sem öll gildi eru skilgreind af karlmönnum. Solanas sagði SCUM hafa tvöfalda merkingu og að orðið táknaði einnig kvenkyns snilling eða konur sem þora. SCUM er einnig oft talið standa fyrir „Society for Cutting Up Men“.
SCUM er hatursræða um karlmennsku. Solanas segir í ávarpinu að karlmennska geri markvisst lítið úr kvenmennsku með það að leiðarljósi að staðsetja karlmenn í efstu valdaþrep samfélagsins en konur í þau neðstu. Hún kennir karlmönnum alfarið um það að eyðileggja fyrir konum.
Fyrir árásina á Andy Warhol 1968 var Valerie dæmd í þriggja ára fangelsi, m.a. fyrir morðtilraun, árás og ólöglega vopnaeign. Stærstan hluta dómsins afplánaði hún á geðdeild. Andy Warhol vitnaði ekki gegn henni en hún á að hafa hringt í hann af spítalanum og hótað honum. Verjandi Valerie var róttæki femínistinn Florence Kennedy, sem sagði Solanas vera einn mikilvægasta talsmann femínistahreyfingarinnar. Solanas var sleppt úr haldi í september 1971 en handtekin fljótt aftur fyrir að senda hótunarbréf og ónáða fólk með símtölum, þar á meðal Andy Warhol. Næstu ár var hún inn og út af geðdeildum. Mikið af þeim bréfum og símtölum sem Valerie var handtekin fyrir sneru að útgáfumálum SCUM. Bókin hefur verið gefin út í mörgum löndum og gekk Valerie alltaf á eftir því að útgefendur greiddu henni sinn hluta af ágóðanum. Valerie Solanas dó 1988.
Í dag er hennar minnst sem hluta af popp-kúltur sjöunda og áttunda áratugsins í Bandaríkjunum. Sumir sjá SCUM manifesto sem hluta af baráttu róttækra femínista í annarri bylgju femínisma en aðrir sjá það fyrst og fremst sem hatursræðu ungrar veikrar konu, sem var misnotuð í æsku, gegn karlmönnum.