Um ritstjórn

Ritstjórn Hugsandi skipa í dag eftirtaldir einstaklingar:

Íris Ellenberger

Íris er með MA- og BA-próf í sagnfræði (með þjóðfræði sem aukagrein) frá Háskóla Íslands. Hún stundar nú doktorsnám við HÍ og gegnir formennsku í Sagnfræðingafélagi Íslands. Netfang: irisel[hjá]hi.is

Þóra Pétursdóttir

Þóra er með BA-próf í sagnfræði (með landfræði sem aukagrein) frá Háskóla Íslands. Hún er með MA gráðu í fornleifafræði frá Háskólanum í Tromsø (UITø) í Noregi. Þóra starfar nú hjá Fornleifastofnun Íslands á Norðurlandi og er búsett á Akureyri. Hún er jafnframt formaður AkureyrarAkademíunnar. Netfang: thora[hjá]instarch.is

Karl Jóhann Garðarsson

Karl Jóhann er með BA-próf í sagnfræði (með trúarbragðafræði sem aukagrein) frá Háskóla Íslands. Hann er með MA-próf í hugmyndasögu frá University of Sussex í Englandi. Karl Jóhann starfar sem sögukennari við Menntaskólann við Hamrahlíð og situr í stjórn Sagnfræðingafélags Íslands. Netfang: kaj[hjá]mh.is

Hafdís Hafsteinsdóttir

Hafdís stundar nám á BA stigi við sagnfræðiskor Háskóla Íslands og er ritstjóri Sagna, tímarits sagnfræðinema.

Svala Kristín Þorleifsdóttir

Svala stundar nám í stjórnmálafræði á BA stigi (með trúarbragðafræði sem aukagrein) við Háskóla Íslands. Netfang: sth102[hjá]hi.is

Áður hafa setið í ritstjórn Hugsandi:

Hrafnkell Lárusson

Hrafnkell er með BA og MA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Hann gegnir nú starfi Héraðsskjalavarðar Austurlands og sinnir auk þess ýmiskonar fræða- og útgáfuverkefnum.

Unnur María Bergsveinsdóttir

Unnur María er með BA-próf í sagnfræði (með frönsku sem aukagrein) frá Háskóla Íslands. Hún vinnur um þessar mundir að því að leggja lokahönd á mastersritgerð í sagnfræði við HÍ.

Karl Jóhann Jóhannsson

Karl Jóhann er með BA-próf í sálfræði (með heimspeki sem aukagrein) frá Háskóla Íslands. Hann stundar nú tölvunarfræðinám á BS stigi við HÍ.

Katla Ísaksdóttir

Katla stundar mannfræðinám á MA stigi við Háskóla Íslands.

Helga Katrín Tryggvadóttir

Helga stundar mannfræði á BA stigi við Háskóla Íslands.

Ingveldur Geirsdóttir

Ingveldur er með BA-próf í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands. Hún stundar nú nám á MA stigi í blaða- og fréttamennsku við HÍ og starfar sem blaðamaður hjá Morgunblaðinu.

Bragi Bergson

Bragi er með BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og BS-próf í umhverfisskipulagsfræði frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri.

Dagný Arnarsdóttir

Dagný er með BA-próf í fornleifafræði frá Háskóla Íslands og University of York í einnar annar skiptinámi. Hún vinnur um þessar mundir að því að leggja lokahönd á meistaraprófsritgerð í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Dagný var formaður Gaiu, félags meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum, veturinn 2007-08. Hún starfar nú í hlutastarfi sem verkefnastjóri meistaranáms í umhverfis- og auðlindafræðum og er auk þess verkefnaráðinn starfsmaður Félags umhverfisfræðinga á Íslandi (FUMÍ).

Hildur Arna Gunnarsdóttir

Hildur er með BS-próf í Umhverfisskipulagsfræði frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri.


Þeim sem vilja hafa samband við aðstandendur Hugsandi er bent á netföng ritstjórnenda hér að ofan og netfangið ritstjorn@hugsandi.is


ISSN