Ritstjórnarstefna Hugsandi
Allt ritað mál markast af hugsun þess sem semur textann og það er sömuleiðis hugsunin sem skapar skilningi viðtakandans forsendur. Til þessa vísar nafn vefritsins Hugsandi. Er Hugsandi enda bæði vettvangur þeirra sem kjósa að deila hugsunum sínum með öðrum og lesendanna, sem hafa þann möguleika að tjá skoðun sína, andsvör og viðbrögð á þeim greinum sem hér birtast.
Hugsandi er vefrit um fræði og menningu í víðum skilningi og er framtak ungs fólks sem á margvíslegan hátt tengist fræða-, lista eða menningarstarfi. Drifkraftur Hugsandi er áhugi ritstjórnarmeðlima á umræðu um menningu og fræði. Að baki vefritinu standa hvorki fyrirtæki né stofnun heldur aðeins þeir einstaklingar sem mynda ritstjórn vefritsins. Mannfræðistofnun Háskóla Íslands og Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands kunnum við hinsvegar kærar þakkir fyrir að hafa af rausnarskap gert okkur kleift að hrinda vefritinu úr vör í október 2005.
Ritstjórn leggur áherslu á fjölbreytni. Við viljum koma á framfæri efni úr margvíslegum kimum fræða og menningar og stíga í sem flesta strauma. Hugsandi hefur það að markmiði að höfða til sem flestra þeirra er áhuga hafa á fræðum og menningu en þó leggjum við sérstaka áherslu á að ná til ungs fólks í háskólanámi og höfum það að sérstöku markmiði að auka möguleika þess á að taka virkan þátt í fræðilegri umræðu.
Fastar birtingar eru tvær á viku, á þriðjudögum og fimmtudögum.
Ritstjórn áskilur sér rétt til að hafna innsendu efni ef höfundar gæta ekki hófs í dómum um menn og málefni eða ef efni greina fellur utan þess sem við teljum að vefritið eigi að birta. Sama á við um athugasemdir við einstakar greinar. Ritstjórn áskilur sér einnig rétt til að fjarlægja athugasemdir þyki henni fólk fara yfir strikið.
Þó stjórnmál eigi marga snertifleti við fræði og menningu og oft gefist tilefni til að ræða þessa þætti saman viljum við undirstrika að Hugsandi er ekki ætlað að vera vettvangur fyrir flokkspólitíska umræðu. Ritstjórn _Hugsandi_ ber ekki ábyrgð á skoðunum og ályktunum greinarhöfunda.
Þeim sem vilja hafa samband við ritstjórn er bent á netfangið ritstjorn@hugsandi.is