Hvað manstu úr þættinum?

Hér koma nokkrar spurningar um Rebbaþáttinn sem þú varst að horfa á.

Hvaða mat ætluðu Haga og Rebbi að hafa í veislunni?

Pizzu

Hvers vegna urðu þau hrædd?

Þau heyrðu gelt í hundinum.

Hvaða gestur mætti fyrstur í veisluna?

Hænan Gogga

Af hverju þurfti Rebbi að fara út úr greninu?

Hann var að fara út með pizzuofninn.

Af hverju vilja Haga og Gogga ekki segja Rebba að hundurinn hafi verið fyrir utan?

Af því að þá yrði hann svo leiður og þá yrði engin pizzuveisla.

Af hverju fór Haga að hósta?

Til þess að Rebbi myndi ekki heyra í hundinum.

Hvaða gestur mætti á eftir Goggu?

Kindin

Hvað vantaði á pizzuna?

Ekki neitt. Það vantaði bara að hafa öll dýrin saman.

Hvers vegna hélt Rebbi að hundurinn væri að stríða sér?

Af því að hann hélt að hundurinn væri að herma eftir því að hann gæti ekki sagt „err".

Hvaða talgalla hafði hundurinn?

Hann gat ekki sagt „err".

Hvað fann Rebbi?

Hann fann fjölskylduna sína í öllum vinum sínum.