Hvað manstu úr þættinum?

Hér koma nokkrar spurningar sem tengjast þættinum. Smelltu á spurningarnar og sjáðu svörin.

Hvers vegna voru Mýsla og Músapési svona sorgmædd?

Vegna þess að langamma þeirra dó.

Hvað ímynduðu þau sér að amma væri þá að gera?

Að hún væri engill uppi á skýi að spila á hörpu.

En hvað hugsuðu þau þegar þau áttuðu sig á því að langamma kynni ekki að spila á hörpu?

Að langamma væri ekki nógu góður engill.

Við hvern töluðu þau þá?

Þau töluðu við Eirík Músafrænda.

Hvað vildu þau að hann segði þeim?

Þau vildu vita hvar hún væri og hvað hún væri að gera.

Hvað sagði Eiríkur Músafrændi

Að það væri ekki hægt að vita hvað hún væri að gera.

Hafði Eiríkur músafrændi áhyggjur af langömmu.

Nei. Hann var viss um að hún væri hjá Guði og allt væri í lagi með hana.

Hvernig leið Mýslu og Músapésa eftir að þau töluðu við Eirík músafrænda?

Þeim leið miklu betur. Nú höfðu þau engar áhyggjur af langömmu.