Hvað manstu úr þættinum?
Hvers vegna voru Mýsla og Músapési að halda veislu?
Músapabbi átti afmæli.
Hvert hafði Músapabbi farið?
Hann hafði farið norður í land að heimsækja bróður sinn.
Klukkan hvað hélt Mýsla að Músapabbi kæmi heim?
Klukkan fjögur.
Hvað gerðist þegar biðin eftir Músapabba varð of löng?
Þau freistuðust til þess að smakka á kökunum.
Hvað var eftir af kökum þegar Músapabbi kom loksins heim?
Ekki neitt. Mýsla og Músapési höfðu borðað allar kökurnar.
Hvernig leið Mýslu og Músapésa þegar Músapabbi vakti þau?
Þau skömmuðust sín því þau voru búin að borða allar kökurnar.
Hvað sögðu þau þá við Músapabba?
Þau báðu hann að fyrirgefa sér að hafa borðað allar kökurnar.
Hvað sagði Músapabbi þá?
Honum þótti líka leiðinlegt að hafa komið svona seint.
Hvað ákváðu mýsnar þá að gera?
Þær ákváðu að búa til nýja veislu daginn eftir.






