Hvað manstu úr þættinum?
Hér koma nokkrar spurningar sem tengjast þættinum. Smelltu á spurningarnar og sjáðu svörin.
Hvernig var veðrið í þættinum?
Mjög vont.
Hver var alein úti í vonda veðrinu?
Kindin.
Hvernig brást kindin við þegar Rebbi ætlaði að hjálpa henni að komast í skjól?
Hún varð hrædd enda treysta kindur ekki refum.
Hvaða lausn fundu Rebbi og Haga til þess að hjálpa kindinni að treysta betur?
Rebbi þóttist vera kind.
Hvað gerði Rebbi til þess að kindin þyrfti ekki að vera hrædd við hann?
Hann vildi frekar vera úti í vonda veðrinu en að láta kindina verða hrædda við hann.
Hvers vegna gat kindin treyst Rebba?
Af því að hann er góður refur.
Hvað hafði Rebbi lært í sunnudagaskólanum?
Að við ættum öll að vera góð hvert við annað því við erum öll jafn dýrmæt.






