Hvað manstu úr þættinum?

Hér koma nokkrar spurningar sem tengjast þættinum. Smelltu á spurningarnar og sjáðu svörin.

Hvað hét músin?

Haga

Rebbi á erfitt með að tala skýrt. Hvaða hljóð kann hann ekki að segja?

Hann kann ekki að segja „err".

Hver átti heima í greninu?

Enginn núna.

Hver átti heima í greninu áður?

Fjölskyldan hans Rebba.

Hvað sagði Rebbi að Haga gæti gert í stað þess að stela mat?

Hún gæti gert eitthvað fyrir einhvern og fengið mat eða pening í staðinn.

Hvaða vinnu má Rebbi fá í kirkjunni?

Að leika Rebbabrúðuna.

Af hverju er hann ekki að vinna þar?

Hann þorir því ekki.

Af hverju þorir hann ekki að vinna í kirkjunni?

Af því að hann gat ekki sagt nafnið sitt rétt.

Af hverju var hann hræddur við hundinn?

Af því að hann hélt að hundurinn væri að stríða honum með því að segja „eðð" í staðinn fyrir „err".

Hvernig vildi Haga kenna honum að segja „err".

Með því að láta hann urra.

Hvað gaf Rebbi Högu að launum?

Hann gaf henni brauðið sitt.

Hvers vegna vildi Haga að Rebbi færi að vinna í kirkjunni?

Til þess að hann gæti keypt handa þeim mat.