Hvað manstu úr þættinum?

Hér koma nokkrar spurningar sem tengjast þættinum. Smelltu á spurningarnar og sjáðu svörin.

Í hvernig leik voru Mýsla og Músapési?

Í kubbaleik.

Hvaða leikföng vildi Mýsla fá?

Hún vildi fá alla flottustu kubbana og nýja bílinn líka.

Hver heimtaði að ráða öllu í leiknum?

Mýsla.

Hvaða bíl fékk Músapési?

Gamlan ónýtan bíl.

Hvernig var húsið hennar Mýslu?

Mjög flott. Hvítir veggir og rautt þak.

Hvernig hús byggði Músapési?

Lítið og ljótt hús.

Hvernig brást Músapési við þegar Mýsla setti út á húsið hans?

Hann varð reiður af því að hún var ósanngjörn.

Hvað sagði Músapabbi við börnin?

Að best væri að skipta dótinu jafn á milli sín.

Hvað ákvað Mýsla að gera að lokum?

Að láta sér þykja jafn vænt um Músapésa og sjálfa sig.