Jesús og börnin
Hér koma nokkrar spurningar úr teiknimyndinni
Hvað var Jesús að kenna fólkinu í upphafi sögunnar?
Um ríki Guðs.
Hverjum vildi Jesús kenna?
Hann vildi kenna öllu fólki: Ríku, fátæku, ungu og gömlu.
Hver komu hlaupandi til Jesú?
Börn
Vildi Jesús tala við börnin?
Já auðvitað. Hann bað sérstaklega um það!
Hverjir vildu ekki leyfa börnunum að koma til Jesú?
Lærisveinarnir. Þeir héldu að börnin væru að trufla.
Hvað sagði Jesús þá?
Leyfið börnunum að koma til mín.






