Rannsóknarleiðangur
Kirkjur geta verið ólíkar. En samt er ýmislegt eins í þeim öllum. Getur þú fundið þessa hluti á myndunum?
1. Altaristafla: Í flestum kirkjum eru listaverk staðstett hér. Stundum er það málverk en stundum er það eitthvað allt annað. Hvernig er það í kirkjunni sem þú ætlar að rannsaka?
2. Altari: Þetta er borð og á það eru settir munir eins og kertjastjakar og blóm. Þeim er alltaf raðað eins: Tvö kerti sitt hvorum megin, tveir blómavasar sinn hvorum megin. Biblía í miðjunni. Hvernig lítur þetta út í kirkjunni sem þú ætlar að rannsaka?
3. Gráturnar: Í flestum kirkjum er grindverk fyrir framan altarið. Þar er hægt að krjúpa. Fólk krýpur þar til dæmis þegar það giftir sig, fermist eða gengur til altaris. Hvernig lítur þetta út í kirkjunni sem þú ætlar að rannsaka?
4. Skírnarfontur: Hann er stundum kallaður skírnarsár eða skírnarskál.
5. Á einum eða fleiri stöðum má sjá töflu með númerum. Númerin eru laus og eru ný sett fyrir hverja messu í kirkjunni. Þetta eru númerin úr sálmabókinni en þar er að finna lög sem sungin eru í messunni.
6. Prédikunarstóll: Hingað fer presturinn þegar hann heldur ræðu. Slík ræða er kölluð prédikun. Fleiri en presturinn geta farið upp í þennan stól til að prédika.
7. Ræðupúlt: Oft er líka að finna lítið ræðupúlt. Stundum vill presturinn frekar vera þar. Fleiri en presturinn geta talað úr ræðupúltinu.

Nú horfum við í hina áttina
8. Kirkjubekkirnir: Hér sitja kirkjugestirnir. Annað orð yfir kirkjugesti er söfnuður.
9. Orgelið: Í flestum kirkjum er orgel. Sumsstaðar er orgelið uppi á svölum og kirkjukórinn stendur þá hjá því og syngur. Það eru þó fleiri hljóðfæri til í flestum kirkjum.
10. Kórloftið: Hér stendur kirkjukórinn eða aðrir söngvarar og syngja í athöfnum kirkjunnar.
11. Í sumum kirkjum eru steindir gluggar. Það eru litríkir gluggar sem sýna myndir eða tákn sem tengjast kristni.
