
Kristinfræði
Kristinfræði er hluti af samfélagsgreinum grunnskólanna. Markmið þessa flokks er að bjóða fram einfalt fræðsluefni sem ýmist er hægt að nota einstaklingslega eða í hópavinnu. Hér er ekki um boðunarefni að ræða heldur unnið með sögur Biblíunnar út frá lífsleikni og bókmenntum, auk þess sem nemendur geta kynnt sér sögu rauðu daganna í dagatalinu. Flokkarnir |Nokkrar biblíusögurnar með verkefnum| og |Ertu sérfræðingur| tengjast lífsleikni þar sem nemendur fá í hendurnar tæki til þess að lesa á milli línanna um leið og þau setja sig í spor söguhetjanna. Hér gefst færi á því að samþætta kristinfræði, lífsleikni og bókmenntir.